Stefna Landsvirkjunar um samfélagslega ábyrgð
Samþykkt og kynnt í nóvember 2011
Markmið stefnunnar er að auka jákvæð áhrif fyrirtækisins á hagsmunaaðila og lágmarka neikvæð áhrif á umhverfi og samfélag. Stefnan er grundvöllur þess að fyrirtækið nái því markmiði sínu að verða leiðandi í orkuvinnslu á sviði endurnýjanlegra orkugjafa og miðar að því að Landsvirkjun taki mið af efnahag, umhverfi og samfélagi í sínum rekstri.
Stefna Landsvirkjunar um samfélagslega ábyrgð
Samfélagsleg ábyrgð Landsvirkjunar er að skapa arð, fara vel með auðlindir og umhverfi og stuðla að því að þekking og jákvæð áhrif af starfsemi fyrirtækisins skili sér til samfélagsins.
Landsvirkjun tryggir að stefnumörkun um samfélagsábyrgð sé framfylgt með því að setja sér markmið og leggja áherslu á eftiralda þætti í starfsemi fyrirtækisins:
1. Landsvirkjun starfar eftir ábyrgum stjórnarháttum
Starfsemi Landsvirkjunar byggir á ábyrgum stjórnarháttum og starfsmenn fylgja siðareglum fyrirtækisins í störfum sínum.
2. Landsvirkjun leitast við að hafa áhrif á virðiskeðju sína
Landsvirkjun gerir kröfu til viðskiptavina og birgja um að þeir sýni ábyrga stjórnarhætti og taki mið af umhverfi og samfélagi í rekstri sínum.
3. Landsvirkjun keppist við að vera í fararbroddi á sviði umhverfismála
Það gerir Landsvirkjun með því að bera virðingu fyrir náttúrunni við val og mótun virkjanakosta, leggja áherslu á sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda, vinna samkvæmt viðurkenndum, alþjóðlegum starfsháttum og lágmarka umhverfisáhrif í starfsemi fyrirtækisins.
4. Landsvirkjun leggur sig fram um að starfa ávallt í góðu samstarfi við samfélagið
Landsvirkjun leggur áherslu á gott samstarf við samfélagið þar sem fyrirtækið starfar með því að tryggja gegnsæ vinnubrögð og stuðla að gagnvirku upplýsingaflæði, taka mið af hagsmunum samfélagsins og tryggja að samfélag og náttúra njóti góðs af starfsemi Landsvirkjunar.
5. Landsvirkjun leggur áherslu á að vera leiðandi í heilsu-, öryggis- og starfsmannamálum
Landsvirkjun vinnur eftir ábyrgri stefnu í öryggis- og starfsmannamálum sem eiga að tryggja vellíðan, öryggi og jafnrétti starfsfólks.
6. Landsvirkjun deilir þekkingu þar sem hún getur stuðlað að nýsköpun og þróun í atvinnulífi og samfélagi
Landsvirkjun leggur áherslur á fagleg vinnubrögð og nýskapandi lausnir sem geta nýst samfélaginu, en gætir þess þó að dreifing þekkingar skaði ekki samkeppnisstöðu fyrirtækisins.
