Um Landsvirkjun
Landsvirkjun er orkufyrirtæki í eigu íslensku þjóðarinnar.
Fyrirtækið framleiðir rafmagn úr endurnýjanlegum orkugjöfum, vatnsafli og jarðvarma.
Landsvirkjun vinnur 75% allrar raforku í landinu og er stærsti raforkuframleiðandi á Íslandi. Um leið er fyrirtækið leiðandi í sjálfbærri nýtingu orkugjafa og stuðlar að aukinni þekkingu, nýsköpun og tækniþróun.
Hlutverk Landsvirkjunar
Hlutverk okkar er að hámarka afrakstur af þeim orkulindum sem fyrirtækinu er trúað fyrir
með sjálfbæra nýtingu, verðmætasköpun og hagkvæmni að leiðarljósi.
Gildi Landsvirkjunar
Starfsfólk Landsvirkjunar hefur framsækni, ráðdeild og traust að leiðarljósi.

