Fjármálasvið
Hlutverk fjármálasviðs er að byggja á víðtækri sérþekkingu á fjármálum og rekstri sem gerir því kleift að veita stjórnendum og einstökum ábyrgðarsviðum þjónustu sem eykur hagkvæmni í rekstri þeirra og þar með öllu fyrirtækinu.
Rafnar Lárusson, viðskiptafræðingur og MSc í fjármálum, er framkvæmdastjóri fjármálasviðsviðs (rafnar hjá lv.is).
Fjármálasvið skiptist í fimm megindeildir:
Áhættustýring
Ármann Jónsson, viðskiptafræðingur, er yfirmaður áhættustýringar hjá Landsvirkjun (armann hjá lv.is).
Fjármáladeild
Deildin annast lánamál, fjárstýringu og markaðsviðskipti. Kristján Gunnarsson er forstöðumaður fjármáladeildar (kristjan hjá lv .is).
Innkaupadeild
Deildin annast þjónustu við innkaup og útboð í þeim tilgangi að auðvelda stjórnendum og ábyrgðaraðilum þá starfsemi og aðstoða þá við að ná fram hámarkshagkvæmni í innkaupum, jafnframt því sem kaupmáttur sameiginlegra innkaupa Landsvirkjunar verði nýttur svo sem verða má. Pétur Pétursson er forstöðumaður innkaupadeildar ( peturp hjá lv. is).
Reikningshald
Deildin annast allt bókhald og fjárhagslega upplýsingavinnslu og ráðgjöf innan fyrirtækisins jafnframt því sem á vegum deildarinnar er starfrækt innri endurskoðun. Kristín S. Konráðsdóttir er forstöðumaður reikningshalds (kristink hjá lv. is).
Þjónustudeild
Deildin hefur umsjón með allri skrifstofuþjónustu og húsnæðismálum fyrir aðalskrifstofu Landsvirkjunar jafnframt því að sjá um ferðaþjónustu í samræmi við þarfir innan fyrirtækisins. Ófeigur Hjaltested er deildarstjóri þjónustudeildar (ofeigur hjá lv. is).

