Fljótsdalsstöð
Mynd 1 af 3
1 2 3

Orkusvið

Hlutverk orkusviðs er að tryggja að raforkuvinnsla og afhending uppfylli gerða samninga við viðskiptavini Landsvirkjunar á  öruggan og hagkvæman hátt. Áhersla er lögð á öryggi og hagkvæmni í orkuöflun, rekstri aflstöðva og miðalana.

Til að tryggja gæði og auka skilvirkni og árangur í rekstri starfrækir Landsvirkjun vottað gæðakerfi sem byggir á ISO 900l, ISO 14001 og OHSAS 18001, sem er samþætt innra rafmagnsöryggisstjórnunarkerfi (RÖSK) og uppfyllir skilyrði laga nr. 146/1996.


Einar MathiesenEinar Mathiesen, viðskiptafræðingur og M.Sc., er framkvæmdastjóri orkusviðs. (einarmat hjá lv. is).

Orkusvið skiptist í fjórar deildir: Sölu- og markaðsdeild, aflstöðvadeild, tæknideild og viðskiptaborð auk þróunarstjóra sem heyrir undir framkvæmdastjóra sviðsins.




Sigurður Guðni SigurðssonAflstöðvadeild

Hlutverk aflstöðvadeildar er að annast rekstur raforkuvinnslu Landsvirkjunar. Deildin ber ábyrgð á rekstri, eftirliti og viðhaldi á eignum sem tilheyra aflstöðvum Landsvirkjunar. Sigurður Guðni Sigurðsson, rekstrarhagfræðingur, er deildarstjóri (sigurdurg hjá lv. is).

Valur KnútssonTæknideild

Hlutverk tæknideildar er að annast endurbótaverkefni í aflstöðvum orkusviðs og sérstök verkefni sem falla utan dagslegs rekstrar orkusviðs og deildinni hafa verið sérstaklega falin við gerð fjárhagsáætlunar. Valur Knútsson, rafmagnsverkfræðingur er deildarstjóri (valurk hjá lv. is).

Eggert GuðjónssonViðskiptaborð

Hlutverk viðskiptaborðs er að annast daglegan rekstur raforkuviðskipta, vinnsluáætlanir, áhættugreiningu varðandi orkuöflun, orkukaup, áhættugreiningu og bestun við nýtingu auðlinda LV og uppgjör á orkuviðskiptum. Eggert Guðjónsson, verkfræðingur, er deildarstjóri (eggert hjá lv. is).

Árni BenediktssonÞróunarstjóri

Þróunarstjóri hefur umsjón með rannsóknum, hönnun, byggingu og eftirliti vegna nýrra virkjana LV sem orkusvið annast í umboði forstjóra. Þróunarstjóri annast ráðgjöf og þjónustu sem honum eru falin vegna verkefna dótturfélaga. Árni Benediktsson, rafmagnsverkfræðingur, er þróunarstjóri LV (arni hjá lv. is).


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica