Skrifstofa forstjóra
Sérstakar stoðdeildir annast sameiginleg mál Landsvirkjunar í heild, einkum á sviði kynningarmála, lagalegra úrlausnarefna, gæðamála og umhverfismála. Þessi starfsemi er á ábyrgð forstjóra og hefur það hlutverk að framfylgja stefnu stjórnar Landsvirkjunar í gæða- og umhverfismálum og gæta hagsmuna fyrirtækisins í heild út á við bæði með jákvæðu kynningarstarfi og réttum viðbrögðum við málefnum sem að því steðja og krefjast lögfræðilegrar úrlausnar.
Forstjóri Landsvirkjunar
Hörður Arnarson, rafmagnsverkfræðingur, er forstjóri Landsvirkjunar. Hörður lauk námi í rafmagnsverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1986. Að því loknu stundaði hann framhaldsnám við DTU í Danmörku og lauk doktorsprófi árið 1990. Hörður starfaði hjá Marel frá 1985 og þar af sem forstjóri fyrirtækisins í tíu ár frá 1999 til 2009. Frá maí til nóvember árið 2009 gegndi Hörður starfi forstjóra Sjóvár og leiddi endurskipulagningu félagsins (hordura hjá lv.is).
Skrifstofustjóri
Ragna Árnadóttir, lögfræðingur og LL.M. í Evrópurétti, er skrifstofustjóri á skrifstofu forstjóra (ragna hjá lv.is).
Gæða- og öryggismál
Guðmundur S. Pétursson, tæknifræðingur, sér um gæða- og öryggismál Landsvirkjunar (gudmundurp hjá lv.is).
Innri og ytri samskipti
Ragna Sara Jónsdóttir, MSc. í alþjóðaviðskiptum er yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar. (sara hjá lv.is).
Lögfræðimál
Jón Sveinsson er er hæstaréttarlögmaður og yfirmaður lögfræðimála á skrifstofu forstjóra. (jonsv hjá lv.is).
Umhverfismál
Ragnheiður Ólafsdóttir, jarðfræðingur og verkfræðingur, er umhverfisstjóri Landsvirkjunar (ragnheidur hjá lv.is).
