Starfsmannasvið
Mikilvægur þáttur í stefnu Landsvirkjunar er að byggja upp öfluga starfsmannaþjónustu þannig að fyrirtækið geti á hverjum tíma notið bestu starfskrafta og þróað þá til gagnkvæmra hagsbóta fyrir starfsmennina sjálfa og fyrirtækið. Starfsmannasvið fylgir þessari stefnu eftir og hefur yfirsýn yfir starfsmannamál Landsvirkjunar auk þess að vera bakhjarl stjórnenda í markvissri mannaflastjórnun.
Sigþrúður Guðmundsdóttir, er framkvæmdastjóri starfsmannasviðs. (sigthrudur hjá lv. is)
Sviðið skiptist í tvær deildir.
Starfskjaradeild
Deildin sér um öll mál er lúta að starfskjörum starfsmanna og gætir í því sambandi gagnkvæmra hagsmuna aðila að þessu leyti, svo sem varðandi samningsbundin réttindi og skyldur, launataxta og útreikninga og tengdar greiðslur, jafnframt því sem deildin hefur umsjón með samningamálum samkvæmt því sem þörf er fyrir hverju sinni. Stefán Halldórsson, er fostöðumaður starfskjaradeildar. (stefan hjá lv. is)
Starfsþróunardeild
Hlutverk starfsþróunardeildar er að annast þjónustu við einstök svið Landsvirkjunar að því er varðar ráðningar, þróun og þjálfun starfsmanna, skipulag og áætlun vegna mannafla, hæfni starfsmanna og fleira þar að lútandi. Ragnhildur Vigfúsdóttir er forstöðumaður starfsþróunardeildar. (ragnvig hjá lv. is)
