Upplýsingasvið
Hlutverk upplýsingasviðs er að bjóða öllum deildum Landsvirkjunar þjónustu við að afla, skipuleggja, vinna úr og miðla upplýsingum, þannig að viðkomandi deild geti sem best þjónað viðskiptavinum sínum. Jafnframt hefur upplýsingasvið forystu um mótun upplýsingastefnu Landsvirkjunar á hverjum tíma í samvinnu við önnur svið fyrirtækisins.
Bergur Jónsson, tölvunarfræðingur, er framkvæmdastjóri upplýsingasviðs (bergur hjá lv.is).
Upplýsingasvið skiptist í fjórar deildir:
Tæknimál
Deildin sér um innkaup búnaðar, uppsetningu og rekstur og öryggismál upplýsingakerfisins. Björn Jónsson, tölvunarfræðingur, er forstöðumaður tæknimála (bjornj hjá lv.is).
Notendaþjónusta
Notendaþjónusta sér um þjónustu við notendur og ber að þessu leyti ábyrgð á skilvirkum þjónustuferlum auk þess sem haldið er utan um notendaleyfi, þjálfun og kennslu. Ásgeir Geirsson, tölvunarfræðingur, er forstöðumaður notendaþjónustu (asgeirg hjá lv.is).
Upplýsingamiðstöð
Hlutverk upplýsingamiðstöðvar er að annast miðlæga upplýsingavinnslu, s.s. bókasafn, skjalastjórn, vefþjónustu og umsjón og aðstoð með útgáfu upplýsingaefnis sem byggir á gagnagrunnum fyrirtækisins. Anna Elín Bjarkadóttir, bókasafnsfræðingur, er forstöðumaður upplýsingamiðstöðvar (annaelin hjá lv.is).
Fjarskiptastjóri
Fjarskiptastjóri fer með umsjón fjarskiptamálefna fyrirtækisins og sér um samskipti við seljendur vöru og þjónustu á fjarskiptasviði. Óskar H. Valtýsson, rafeindavirki, er forstöðumaður fjarskiptamála (oskarv hjá lv.is).
Upplýsingaöryggisstjóri
Upplýsingaöryggisstjóri ber ábyrgð á að stjórnkerfi upplýsingaöryggis sé virkt og í stöðugri framþróun. Hann ber ábyrgð á samþættingu við gæðakerfi, stýrir gerð áhættumats upplýsingaeigna, samræmir innleiðingu stýringa og hefur umsjón með skjalahaldi stjórnkerfis upplýsingaöryggis. Ásgeir Geirsson, tölvunarfræðingur, er upplýsingaöryggisstjóri (asgeirg hjá lv.is)
