Um vottanir
Gæðakerfi Landsvirkjunar er vottað samkvæmt staðlinum ISO 9001. Umhverfisstjórnun Landsvirkjunar er vottuð samkvæmt ISO 14001 og öryggisstjórnkerfi upplýsingasviðs Landsvirkjunar er vottað samkvæmt ISO 27001. Auk þess hefur þýska vottunarstofan TÜV SÜD vottað raforkuvinnslu Landsvirkjunar sem græna raforkuvinnslu.

Í desember 2009 fékk Landsvirkjun afhent vottorð til staðfestingar á því að staðallinn OHSAS 18001 hefur verið innleiddur hjá fyrirtækinu.
Landsvirkjun fékk vottun samvæmt ISO 9001 staðlinum í janúar 2006. Þessi vottun markaði upphafið að innleiðingu á samþættu stjórnkerfi Landsvirkjunar.
Öll starfsemi Landsvirkjunar er vottuð samkvæmt alþjóðastaðlinum ÍST EN 14001. Vottunin nær því til raforkuvinnslu, sölu og afhendingar á raforku ásamt rannsókna og stjórnunar viðhalds- og nýframkvæmda við Blöndustöð, Fljótsdalsstöð og aflstöðvar á Mývatnssvæði, Sogssvæði og Þjórsársvæði.
Upplýsingasvið Landsvirkjunar rekur upplýsingakerfi samkvæmt staðlinum ISO 27001 um stjórnkerfi upplýsingaöryggis. Upplýsingasvið hlaut vottunina í mars árið 2008.
Landsvirkjun hlaut Íslensku gæðaverðlaunin í nóvember 2007. Markmiðið með Íslensku gæðaverðlaununum er að veita fyrirtækjum og stofnunum viðurkenningu fyrir raunverulegan stjórnunarárangur og jafnframt hvetja fyrirtæki til að setja sér skýr markmið og leggja mat á árangurinn reglulega.