Öryggisstjórnun samkvæmt OHSAS 18001
Í desember 2009 fékk Landsvirkjun afhent vottorð til staðfestingar á því að staðallinn OHSAS 18001 var innleiddur hjá fyrirtækinu.
Staðallinn OHSAS 18001 er kröfulýsing á sviði öryggis- og vinnuumhverfisstjórnunar. Fyrirtæki sem starfa skv. staðlinum þurfa sífellt að vinna að umbótum á örryggi, heilsu og vellíðan starfsfólks. Staðallinn á meðal annars að tryggja, að öryggis- og heilbrigðismál séu órjúfanlegur þáttur í mats- og ákvörðunarferli við fjárfestingar, framkvæmdir, rekstur og kaup á vöru og þjónustu.
Staðallinn OHSAS 18001 er hluti af samþættu stjórnkerfi Landsvirkjunar. Staðlarnir ISO 9001 (gæðastjórnunarstaðall) og ISO 14001 (umhverfisstjórnunarstaðall) eru einnig undirstöður þessa stjórnkerfis.
Við vottun á stjórnkerfinu er staðfest að vönduð vinnubrögð eru viðhöfð og að unnið er markvisst og með samræmdum hætti að gæða-, umhverfis- og öryggismálum.
Gæðastjórnunarstaðallinn ISO 9001 var innleiddur árið 2006, umhverfisstjórnunarstaðallinn var vottaður árið 2008 og nú síðast hefur verið staðfest að Landsvirkjun starfar samkvæmt staðlinum OHSAS 18001.
Grunnur samþætta stjónkerfisins hefur vaxið og eflst við hvern áfanga. Þetta sést best á því að aðeins þurfti að bæta við fjórum nýjum verklagsreglum þegar kröfur ISO 14001 voru innleiddar og einni nýrri verklagsreglu við innleiðingu OHSAS 18001. Öðrum kröfum staðlanna hefur verið fléttað inn í stjórnkerfið og þær verklagsreglur sem fyrir voru.
Fyrirtækið Vottun hf. annaðist úttektir og vottun Landsvirkjunar vegna OHSAS 18001 staðalsins.
