Gæðastjórnun samkvæmt ISO 9001
Í janúar 2006 varð vottun á gæðakerfi Landsvirkjunar að veruleika. Vottunin var áfangi í margra ára starfi Landsvirkjunar að gæðamálum.
Árið 2002 var upphafið markað að þeirri gæðastjórnun sem Landsvirkjun hefur nú innleitt og verið vottuð samkvæmt ÍST EN ISO 9001 staðlinum.
Ákveðið var að gæðastjórnun Landsvirkjunar yrði byggð á þessum staðli. Saman mynda umhverfisstjórnunarstaðallinn ISO 14001 og öryggisstjórnunarstaðallinn OHSAS 18001 ásamt gæðastjórnunarstaðlinum ISO 9001 samþætt stjórnkerfi Landsvirkjunar. Undir gæðastjórnun falla einnig rafmagnsöryggismál og hefur skjalsett kerfi verið notað í nokkur ár samkvæmt kröfum rafmagnsöryggissviðs Mannvirkjastofnunar. Upplýsingasvið Landsvirkjunar er vottað samkvæmt staðlinum ISO 27001 um upplýsingaöryggi.
Eftir að breytt raforkulög tóku gildi árið 2005 hefur gæðastjórnun hlotið meira vægi í starfsemi Landsvirkjunar. Nú er framleiðsla raforku frjáls og því er samkeppni á markaði með raforku orðin að veruleika. Þetta hefur leitt til þess að þeir þættir sem tengjast viðskiptavinum og markaði eru mjög mikilvægir í virkni gæðastjórnunar.
Vottun gæðakerfis Landsvirkjunar veitir fyrirtækinu forskot á raforkumarkaði þar sem ferlar sem tengjast viðhaldi, áreiðanleika, afhendingu og rekstri aflstöðva, liggja til grundvallar í vottaðri framleiðslu raforkunnar.
