Stjórnun upplýsingaöryggis
Upplýsingasvið Landsvirkjunar hefur staðist vottun samkvæmt staðlinum ISO 27001, stjórnkerfi upplýsingaöryggis. Upplýsingasvið sér um rekstur helstu upplýsingakerfa Landsvirkjunar og tengdra félaga.
Vottunin staðfestir að Landsvirkjun hefur byggt upp og starfrækir virkt stjórnkerfi upplýsingaöryggis. Í því felst meðal annars að gert hefur verið áhættumat á upplýsingakerfum og beitt er kerfisbundunm aðferðum til að lágmarka áhættu. Landsvirkjun hefur sett sér stefnu í upplýsingaöryggismálum ásamt verklagi við rekstur upplýsingakerfa. Á grundvelli stjórnkerfisins eru sett markmið og árangur mældur við stjórnun upplýsingaöryggis. Þess má geta að Landsvirkjun er vottuð samkvæmt gæðastjórnunarstaðlinum ISO 9001 og hlaut íslensku gæðaverðlaunin 2007. Þá er raforkuframleiðsla fyrirtækisins vottuð samkvæmt umhverfisstjórnunarstaðlinum ISO 14001.
Upplýsingar og upplýsingakerfi verða æ mikilvægari í rekstri Landsvirkjunar. Orkufyrirtæki hafa auk þess þá sérstöðu að framleiðsluvara þeirra, raforkan, er undirstaða nútíma þjóðfélags, þar með talið vörslu upplýsinga og gagnavinnslu. Það er því mikilvægt fyrir viðskiptavini Landsvirkjunar að geta treyst að viðhöfð séu vönduð og viðurkennd vinnubrögð. Landsvirkjun er 10 aðilinn á Íslandi sem hlýtur vottun samkvæmt ISO 27001 staðlinum en þeir sem fyrir eru starfa einkum á sviði upplýsingatækni og fjármála.

Bergur Jónsson, framkvæmdastjóri upplýsingasviðs Landsvirkjunar tekur við vottunarskjali
úr hendi Árna H. Kristinssonar framkvæmdastjóra BSI á Íslandi 12. mars 2008.
