Umhverfismál
Landsvirkjun er leiðandi í nýtingu umhverfisvænna orkugjafa og er í fararbroddi á sviði umhverfismála. Fyrirtækið stuðlar að sjálfbærri þróun í samfélaginu.
- Landsvirkjun er með vottað umhverfisstjórnunarkerfi samkvæmt alþjóðastaðlinum ISO 14001 og vinnur af ábyrgð að umhverfismálum.
- Landsvirkjun hefur skilgreint þýðingarmikla umhverfisþætti í starfsemi sinni og komið á verklagi við að vakta og stýra þeim.
- Þá hefur fyrirtækið skilgreint markmið í umhverfismálum um hvernig draga megi úr umhverfisáhrifum starfseminnar.
- Landsvirkjun gerir grein fyrir árangri sínum í umhverfismálum með umhverfisskýrslum.
Umhverfisskýrslu Landsvirkjunar 2010 má skoða hér að neðan:

Landsvirkjun hefur látið hanna forrit til stjórnunar á grænu bókhaldi. Forritið fæst án endurgjalds hjá Landsvirkjun.
Öll starfsemi Landsvirkjunar er vottuð samkvæmt alþjóðastaðlinum ÍST EN 14001.
Landsvirkjun setur fram kröfur og tilmæli til verktaka, birgja og þjónustuaðila varðandi umhverfis- og öryggismál.