Rafmagnið notað

Öryggismál

Bruni af völdum sjónvarps eru algengustu brunatjónin þegar litið er til raftækja. Öryggin eru eins konar veikir hlekkir í rafmagnsleiðslunum. Ef of mikið rafmagn fer um öryggið rýfur það strauminn og hringrás rafmagnsins er því úr sögunni.

Í keramik öryggjunum er rafmagnið leitt í gegnum þráð. Við ofhitnun bráðnar þráðurinn og straumurinn rofnar. Í nýrri gerð öryggja greinir segulmagnaður búnaður hvort of mikið rafmagn er leitt um rafmagnsvírana. Í þeim þarf ekki að skipta um öryggi heldur nægir að nota rofann á örygginu til að setja rafstrauminn aftur á.

Þegar við notum raforku á heimilum okkar þarf í mörgum tilvikum tvo rafmagnsvíra. Annar vírinn leiðir rafmagnið, en sagt er að hinn sé hlutlaus. Mörg raftæki þurfa hins vegar þrjá rafmagnsvíra. Þriðji vírinn gegnir því hlutverki að jarðtengja raftækið.

Jarðtengingin gegnir mikilvægu öryggishlutverki. Við getum ímyndað okkur að inni í brauðrist losni rafmagnsvír. Ef vírinn snertir málminn sem umlykur brauðristina getum við fengið rafstraum þegar við snertum tækið. Jarðtengingin gegnir því hlutverki að leiða strauminn burt frá tækinu og niður í jörðina. Ef þetta gerist á öryggið að rjúfa strauminn og við getum snert raftækið áhyggjulaus.

Þegar við notum raftæki ættum við alltaf að hafa í huga hættuna sem þau geta valdið. Eldavélar, straujárn og jafnvel ljósaperur geta valdið íkveikju ef ekki er rétt farið með þessi raftæki.


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica