Rafmagnið notað

Að búa til hita

Ef við setjum rafstraum á vír sem veitir rafeindunum mikið viðnám verður til hiti. Málmurinn hitnar vegna þess að rafeindirnar núast saman og hita vírinn.

Þessi aðferð til að búa til hita er notuð í tækjum eins og eldavélum, brauðristum og mörgum öðrum tækjum sem gefa frá sér hita. Tæki eins og eldavélahellur, hraðsuðukatlar og bakarofnar eru öll hönnuð með það fyrir augum að veita rafeindunum mótstöðu og breyta raforkunni í hitaorku.

Örbylgjuofnar nota aðra aðferð við að hita og sjóða matinn okkar. Í þeim er rafmagn látið streyma um tæki sem nefnist magnetron. Þetta tæki byr til rafsegulbylgjur (örbylgjur) og beinir þeim að matnum í ofninum. Við það byrja efni í matnum (oftast vatnið) að titra, og við þennan titring og núning efnanna verður til hiti og maturinn hitnar mjög fljótt.


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica