Rafmagnið notað

Á heimilinu

Raforkumælirinn sýnir orkunotkun í kílówattstundum (kWst.). Watt stendur fyrir aflið sem tækið notar. Kíllówattstund segir okkur hversu mikið afl er notað í eina klukkustund. Með þessari einingu er orkunotkunin mæld. Þetta þýðir að ef við ryksugum heima hjá okkur í eina klukkustund með ryksugu sem er 1.000 wött erum við einmitt að nota eina kílówattstund.

Þú getur fundið út hversu mikla raforku þú hefur notað á einum degi með því að lesa af mælinum á sama tíma tvo daga í röð.

Raftækin sem við notum þurfa á mismunandi afli að halda til að þau geti unnið tilætluð verk. Tæki sem dýrt er að reka eru þau sem þurfa á mikilli orku að halda og eru í notkun í langan tíma í senn.


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica