Samkeppni grunnskólanema

Í Morgunblaðinu hefur verið birtur fjöldinn allur af fréttum, greinum og pistlum um Kárahnjúkavirkjun. Vinna má upplýsingar úr þessu efni við lausn verkefnisins um Kárahnjúkavirkjun. Einnig má benda á ýmsar aðrar vefsíður þar sem fjallað er um virkjunina.

Í Morgunblaðinu hefur verið birtur fjöldinn allur af fréttum, greinum og pistlum um Kárahnjúkavirkjun. Vinna má upplýsingar úr þessu efni við lausn verkefnisins um Kárahnjúkavirkjun. Einnig má benda á ýmsar aðrar vefsíður þar sem fjallað er um virkjunina.

Þeir sem vilja vinna verkefni um magntölur og stærðir Kárahnjúkavirkjunar geta byrjað með því að skoða þessa síðu á vef Kárahnjúkavirkjunar.

Þeir nemendur sem vilja vinna verkefni um umhverfismál Kárahnjúkavirkjunar geta notað gagnasafn Morgunblaðsins t.d. með hjálp þeirra leitarorða sem gefin eru upp hér á síðunni. Einnig er mikill fróðleikur á vefnum www.karahnjukar.is

Þar er skýrsla um mat á umhverfisáhrifum virkjunarinnar og í henni er samantekt um helstu umhverfisáhrif og einnig fylgja skýrslunni samantektir vísindamanna um einstök atriði sem rannsökuð voru. Þá er þarna að finna úrskurði bæði Skipulagsstofnunar og Umhverfisráðherra og í þeim eru raktar umsagnir og athugasemdir sem bárust og viðbrögð stjórnvalda við þeim.

Flestir skólar á landinu hafa aðgang að gagnasafni Morgunblaðsins og er því hægt að leita efni Morgunblaðsins að upplýsingum um virkjunina. Þar sem aðeins er hægt að nálgast gagnasafnið frá skólum, bókasöfnum og öðrum þeim sem eru skráðir notendur að gagnasafninu er líklega ekki hægt að nálgast gagnasafn Morgunblaðsins frá heimili þínu.

Hér að neðan er ítarlegur leitarorðalisti sem nota má til að leysa verkefnið sem tengjast Kárahnjúkavirkjun.

Leitarorðalisti fyrir Kárahnjúka í gagnasafni Morgunblaðsins
Þú losnar við margar greinar sem koma Kárahnjúkum ekki við ef þú hefur ekki hakað við íþróttir, sjávarútveg, úr verinu, fasteignablaði, bílablaðið og barnablaðið. Benda má á að betra er að setja þessi orð í reitinn „orðaleit“ frekar en „efnisleit“. Skynsamlegt er að leita a.m.k. aftur til ársins 2001.

Kárahnjúkar
Kárahnúkastífla
Desjarárstífla
Hálslón
Mat á umhverfisáhrifum vegna Kárahnjúkavirkjunar
Teigsbjarg
Impregilo
Mótmælendur
Vinnubúðir við Kárahnjúka
Risabor
Orkumál – kemur mest fram um þetta verkefni fyrir skólakrakka.
Landsvirkjun

Nokkrir einstaklingar sem hafa tjáð sig um Kárahnjúka í blöðum
Benda má á að ef leitað er að nöfnum er gott að velja "Greinarnar eiga að innihalda öll orðin".

Agnar Olsen
Árni Finnsson
Ásta Þorleifsdóttir
Elísabet Jökulsdóttir
Friðrik Sophusson
Guðmundur Páll Ólafsson
Halldór Ásgrímsson
Jakob Björnsson
Jóhannes Geir Sigurgeirsson
Kolbrún Halldórsdóttir
Kristinn Haukur Skarphéðinsson
Ólafur Páll Jónsson
Ólafur Páll Sigurðsson
Pétur Gunnarsson
Sigurður Arnalds
Sigurður Jóhannesson
Sigurður Snævarr
Skarphéðinn Þórisson
Smári Geirsson
Stefán Pétursson
Tryggvi Felixsson
Valgerður Sverrisdóttir
Þorsteinn Hilmarsson
Þorsteinn Siglaugsson
Þóra Ellen Þórhallsdóttir

Slóðir á vefsíður félaga og stofnana sem fjallað hafa um Kárahnjúkavirkjun

Landvernd - www.landvernd.is
Náttúruvaktin - http://www.natturuvaktin.com/
Náttúruverndarsamtök Íslands - www.natturuverndarsamtok.is
Náttúrufræðistofnun Íslands – www.ni.is
Skipulasstofnun – www.skipulag.is
Umhverfissráðuneytið - www.umhverfisraduneyti.is
Viðskiptaráðuneytið – www.vidskiptaraduneyti.is

Senda grein


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica