Veggspjöld með upplýsingum um Kárahnjúkavirkjun

Á þessum sex veggspjöldum kemur fram ýmiss fróðleikur um orkuvinnslu og umhverfismál.

Á veggspjöldunum er einnig að finna verkefni sem tengjast orkumálum. Við bendum hér að neðan á nokkrar leiðir sem fara má til þess að leysa verkefnin.

Veggspjöldin:

Veggspjald 1: Hver er þáttur sólarinnar í rafmagnsframleiðslu með vindafli, olíu og jarðhita? 
Á þessu veggspjaldi er því lýst hvernig sólin knýr þau öfl sem við notum til þess að vinna raforku.
Til þess að vinna verkefnið á veggspjaldinu er skemmtilegt að skoða vef vísindasafnsins í London. Til þess að fræðast um jarðhita má smella á „Geothermal Power“. Einnig er fjallað um sólina undir liðnum „Oil and gas appear“. Atriðið „Windpower“ lýsir því hvernig vindmyllur virka. Á veggspjaldinu „Vatnsafl er sólarorka“ er greint frá því hvernig sólin hefur áhrif á vatnið.

Veggspjald 2: Elstu vatnsaflsvirkjanir voru oft byggðar neðan við fossa. Af hverju heldur þú að það hafi verið? Nú er vatni oft safnað saman í lón og það leitt í göngum að stöðvarhúsi. Af hverju heldur þú að það sé gert?
Á fyrstu árum rafvæðingar réðu menn ekki yfir eins öflugum vinnuvélum til verklegra framkvæmda eins og síðar varð. Því skiptir máli fyrir rafmagnsframleiðslu með vatnsorku að finna staði þar sem mikill hæðarmunur er í vatsborði á stuttri vegalengd eða að búa til þannig aðstæður. Rafmagn er framleitt í vatnsaflsvirkjunum með því að láta sem mest vatn falla á hverfilhjól á sem mestri ferð.

Veggspjald 3: Hvar var fyrsta rafveita á Íslandi og hvenær var hún byggð, hver byggði hana og hvernig var rafmagnið selt?
Vefurinn Rafmagn á íslandi í 100 ár var opnaður í tilefni af 100 ára afmæli rafmagns á Íslandi. Á þessum vef koma fram upplýsingar um fyrstu rafveituna á Íslandi.

Veggspjald 4: Hvers vegna er losun CO2 svona mismikil í þessum löndum? Hvaða aðferðir við framleiðslu á rafmagni skyldu vera notaðar í þessum löndum?
Á vef alþjóða orkumálastofnunarinnar má sjá hvernig rafmagn er framleitt í hinum ýmsu löndum. Veljið fyrst svæði í heiminum, finnið síðan nafn á því landi sem þið viljið athuga nánar og smellið síðan á takkann Submit. Þá kemur upp tafla yfir orkugjafana í því landi og hversu mikið er framleitt með þeim.

Veggspjald 5: Hvað skyldi pennaveskið þitt og það sem í því er tengjast mörgum stöðum í heiminum?
Leitaðu eftir því hvort það stendur „Made in ...“ á pennaveskinu sjálfu eða því sem í því er. Prófaðu síðan að leita að upplýsingum um þetta land á Google. Athugaðu hvort upplýsingar um þetta land koma fram. Önnur leið er að leita að vörumerkjum og upplýsingum um þau hjá Google eða öðrum leitarvélum.

Veggspjald 6: Prófaðu orkuleik Landsvirkjunar á fræðsluvefnum. Þar sérðu að því meiri kröfur sem við gerum til lífsgæða þeim mun meira rafmagn þarf að framleiða. Hvernig getum við dregið úr þörfinni fyrir rafmagn?
Orkuleik Landsvirkjunar má opna með því að fara á fræðsluvef Landsvirkjunar. Á vefnum Rafmagn í 100 ár má finna ýmis ráð til að spara rafmagn. En skyldi vera hægt að nota eitthvað annað í stað rafmagns?


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica