Í hverju fólust verkefnin?

Nemendur í 1.-4. bekk:

Myndskreyting við söguna „Rabbi rafeind“ eftir Yrsu Sigurðardóttur barnabókarithöfund og verkfræðing við Kárahnjúkavirkjun.

Leiðbeiningar:
Hægt er að nálgast söguna um „Rabba rafeind“ á PDF sniði. Til þess að vinna verkefnið má nýta sér söguramma um „Rabba rafeind„“ sem nálgast má hér á vefnum. Söguramminn getur nýst kennurum til að móta vinnuna með söguna. Einnig má nálgast ítarefni um „Rabba rafeind“, sem nefnist „Viltu vita meira um rabba rafeind?“, einnig eftir Yrsu Sigurðardóttur.
Hægt er að lesa söguna fyrir nemendur eða nota hana sem lesefni fyrir þá. Þeir kennarar sem ekki hafa tök á því að fjölfalda söguna fyrir nemendur sína geta haft samband og við munum senda þeim eintök eftir þörfum.

Nemendur í 5.-7. bekk og 8.-10. bekk geta valið um verkefnið A eða B hér að neðan.

A. Umfjöllun um raforkuvinnslu
Í þessu verkefni skal taka tillit til einhverra eftirfarandi þátta:

  • Hvaðan kemur raforka, hvernig er hún framleidd?
  • Hvaða hlutverki gegnir raforkuframleiðslan?
  • Hvernig væri Ísland án rafmagns?
  • Hvað getur komið í stað raforku?

B. Kynning um Kárahnjúkavirkjun
Í þessu verkefni skal taka fyrir einhver af eftirfarandi atriðum:

  • Lýsing á helstu mannvirkjum og raforkuframleiðslunni
  • Stærðir og magntölur virkjunarinnar sem og framleiðsla hennar settar í samhengi daglegs lífs.
  • Umfjöllun um umhverfismál og umhverfisáhrif virkjunarinnar.
  • Umfjöllun um samfélagsumræðuna varðandi virkjunina.

Leiðbeiningar:
A. Fjölbreytt efni þessu tengt er á Orkuvefnum og fræðsluvef Landsvirkjunar. Sérstaklega er bent á Orkuleik Landsvirkjunar ásamt verkefnabók. Einnig má benda á veggspjöld um orkumál og efni þeim tengt á vefnum. Þá er á vefnum krækja ásamt ábendingum um orkuvef frá Vísindasafninu í London sem telja má einhvern besta fræðsluvef um orku sem til er.

B. Á fræðsluvef Landsvirkjunar er sérstök síða með leiðbeiningum um hvernig hægt er að nálgast efni tengt þessum verkefnum. Vefurinn www.karahnjukar.is hefur að geyma mikið efni og þar er m.a. aðgengilegt yfirlit yfir allar umhverfisrannsóknir, athugasemdir og ábendingar frá ólíkum hagsmunaaðilum og viðbrögð stjórnvalda. Á vefsíðunni um samkeppnina hér á vef Landsvirkjunar er vefsíða með lista yfir vænleg leitarorð í gagnabanka Morgunblaðsins og vefslóðir sem að gagni geta komið við umfjöllun um samfélagsumræðuna við Kárahnjúka.

Verði eftir því leitað eru starfsmenn Landsvirkjunar tilbúnir að aðstoða við fræðslustarfið eftir föngum, t.d. með milligöngu um heimsóknir í virkjanir og kynningu á orkumálum í skólunum sjálfum. Vonast er til að verkefnin geti nýst við kennslu í sem flestum námsgreinum.

Meira efni tengt þessum verkefnum verður birt á fræðsluvef Landsvirkjunar á næstu vikum. Hægt er að skrá sig á póstlista til þess að fá upplýsingar um nýtt efni á vefnum. Við óskum eftir því að kennarar láti ganga til okkar ábendingar og efni sem gagnast getur öðrum við úrlausn á verkefnum og fræðslu um orkumál.

Um samkeppnina

Óskað er eftir því að þeir skólar og nemendur sem hafa hug á að taka þátt í samkeppni Landsvirkjunar skili verkefnum sínum í síðasta lagi 7. apríl nk. Landsvirkjun, í samvinnu við dómnefnd skólafólks, veitir viðurkenningar fyrir vel útfærð verkefni. Ekki eru neinar skorður á hvernig verkefnin skuli unnin. Einstaklingar jafnt sem hópar geta skilað inn verkefnum. Þau geta t.d. verið ritgerðir, veggspjöld, glærukynningar, kvikmyndir, margmiðlunarefni, líkön eða aðrir gripir. Við hvetjum skólana og nemendur til að leita frjórra leiða til að leysa verkefnin.

Nokkur börn af öllum aldursstigum verða síðan valin til að leggja verkefni sín í blýhólkinn í hornstein Kárahnjúkavirkjunar og aðstoða Forseta Íslands við lagningu hans. Fjölskyldum barnanna verður boðið að vera viðstaddar ásamt þeim kennurum sem aðstoða börnin við úrlausn verkefnanna.

Sendið úrlausnir verkefnanna til Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík og merkið sendinguna Samkeppni um orkumál.

Hafið þið ábendingar eða spurningar? Snúið ykkur til Þorsteins Hilmarssonar, upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar í síma 515 9000 eða með því að senda honum tölvupóst á netfangið thorsteinn@lv.is.


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica