Umhverfisvæn orka

Í vatnsorkuverum og jarðhitastöðvum er náttúruleg hringrás vatnsins nýtt til rafmagnsframleiðslu. Í vatnsorkuverum er þetta gert með því að beisla þá orku sem er fólgin í falli vatnsins á leið þess til sjávar. Þetta er sannkölluð eilífðarvél sem sólin knýr. Nýting vatnsorkunnar skilar mengunarlausri orku með sjálfbærri aðferð án þess að gangi á orkugjafann.


Hringrás vatnsins

Vatnsaflsstöðvar og jarðvarmavirkjanir gætu ekki starfað ef vatnið væri ekki á sífelldri hringrás í umhverfinu. Sólin veldur því að vatn gufar sífellt upp af yfirborði jarðar. Þegar loftið kólnar þéttist vatnsgufan og verður að skýjum. Úr þeim fellur síðan úrkoman.

Lesa meira
 

Vatnsafl og jarðvarmi í samanburði við aðrar tegundir orku

Vatnsafl og jarðvarmi eru endurnýjanlegar orkulindir. Vindurinn, sólin og sjávarföll eru líka endurnýjanlegar orkulindir, því með þeim er hægt að búa til rafmagn án þess að menga og ekki er gengið á forða þeirra.

Lesa meira
 

Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica