Virkjanir og aflstöðvar
Að velja virkjun stað
Ýmsar leiðir eru til að hafa virkjað fall sem mest. Stífla í árfarvegi hækkar vatnsborðið ofan við stöðvarhús. Aðrennslisgöng eða skurðir geta flutt vatn í hárri stöðu fram að stað þar sem náttúrulegur farvegur árinnar liggur mun lægra.
Frárennslisskurð eða frárennslisgöng má einnig grafa niður fyrir farveginn á móts við stöðina. Auka má vatnsmagn í gegnum virkjun með því að veita vatni inn á vatnasviðið ofan hennar og með miðlunarlónum má safna vatni um sumarið til vetrarins þegar minna vatn er í ánni.
