Virkjanir og ferðamál
Margar virkjanir hafa verið reistar á hálendinu. Þeim hafa fylgt miklar framkvæmdir og í tengslum við þær eru lagðir vegir. Allur almenningur getur nýtt sér þessa vegi og opna vegirnir leið að áður lokuðum svæðum. Eitt besta dæmið um þetta er hvernig Þjórsárdalur opnaðist með byggingu Búrfellsstöðvar og er dalurinn vinsæll áningarstaður ferðamanna í dag. Virkjanir á hálendinu hafa bætt vegasamband enn frekar og nú er svo komið að góður vegur, lagður bundnu slitlagi liggur alla leið að Vatnsfelli.
Landsvirkjun á gott samstarf við heimamenn á virkjunarsvæðunum. Reynt er í samstarfi við þá að bæta umhverfi virkjunarsvæða svo þau falli sem best að auknum straumi ferðamanna. Um leið er hlúð að viðkvæmum stöðum sem eru eftirsóttir af ferðamönnum svo náttúran bíði ekki skaða af. Landsvirkjun treystir þannig í samstarfi við ferðaþjónustu, sveitarfélög og stofnanir á virkjanasvæðunum undirstöður þess að virkjanir og ferðaþjónusta þrífist vel saman
Á mörgum virkjunarsvæðum hefur Landsvirkjun tekið upp samstarf um að merkja gönguleiðir með stikum og bæta aðgengi að fjölsóttum stöðum í nágrenni virkjana. Td. styrkti Landsvirkjun gerð útivistarkorta í Húnaþingi og hefur sumarvinnuflokkur Landsvirkjunar í Blönduvirkjun stikað nokkrar gönguleiðir sem kortin sýna. Starfsmenn Landsvirkjunar hafa einnig gengið frá stígum við fjölsótta staði eins og Þjórsárdal og litið eftir því að ferðamenn skaði ekki gróður.
