Endurnýjanleg orka

Vatnsorka er hreyfiorka

Nýting vatnsorku felur í sér að virkja hreyfiorkuna sem til verður við fall vatns á leið þess til sjávar. Krafturinn í vatnsrennslinu ræðst af vatnsmagni og fallhæð og er notaður til að vinna rafmagn með því að leiða vatnið gegnum hverfilhjól í vatnsorkuveri sem síðan snýr rafala og raforka myndast. Í þessu ferli er hvorki gengið á vatnsauðlindina né verður vatnið fyrir mengun.

Read more

Jarðhiti

Við nýtingu jarðhita er sú orka nýtt sem er að finna í jarðlögum á svæðum þar sem varmastreymi frá kjarna jarðarinnar til yfirborðs er óvenju mikið. Með því að bora holur ofan í jarðhitageyma opnast leið fyrir heitan jarðhitavökva (vatn, gufu og gas) til að streyma til yfirborðs.

Read more

Útlit síðu: