Græn vottorð
Með tilkomu aðildar Íslands að hinum sameiginlega innri markaði fyrir raforku í Evrópu gátu íslenskir raforkuframleiðendur hafið sölu á grænum vottorðum.
Evrópusambandið hefur á undanförnum árum leitast við að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda og efna þar með skuldbindingar Kyoto-bókunarinnar frá 1997. Raforkuframleiðsla á meginlandi Evrópu byggir aðeins að litlu leyti á endurnýjanlegum orkugjöfum. Til að ýta undir raforkuframleiðslu með endurnýjanlegum orkugjöfum (grænu rafmagni) var svokölluð RES-E tilskipun, 2001/77/EC, innleidd. Þar setja aðildarríki ESB sér markmið um að auka vægi endurnýjanlegra orkugjafa. Markmiðið er að notkun á grænu rafmagni verði komin í 21% á ESB-svæðinu árið 2010.
Samkvæmt tilskipuninni eiga einstök aðildarríki sjálf að ákveða hvaða aðferðum þau beita til að hvetja raforkuframleiðendur til að auka framleiðslu sína með endurnýjanlegum orkugjöfum. Aðildarríkin beita ýmsum aðferðum við að ná settum markmiðum og eru viðskipti með græn vottorð ein þessara leiða.
Framleiðsla með endurnýjanlegum orkugjöfum skiptist í rafmagnið sjálft og græna hlutann, þ.e. grænu vottorðin. Báðir þessir þættir eru söluvara og eru grænu vottorðin staðfesting á því að raforkan hafi verið framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum.
Græn vottorð eru nokkurs konar upprunavottorð og gera framleiðendum raforku sem hafa hátt hlutfall af endurnýtanlegum orkugjöfum á hinum innri markaði tækfæri til að selja græn vottorð vegna framleiðslu sinnar. Kaupendur eru aðrir framleiðendur á innri markaðnum sem vilja auka hlutdeild grænnar framleiðslu sinnar með því að kaupa græn vottorð. Viðskipti með græn vottorð eru möguleg í nokkrum ESB löndum í dag.

Sala grænna vottorða er háð þeim skilyrðum sem sett eru í hverju aðildarríki fyrir sig. Skilyrðin eru mjög mismunandi eftir því hvaða ríki á í hlut.
Til eru þrjár megintegundir grænna vottorða:
- Vottorð seld til að fullnægja lagaskyldu um hlutfall grænnar framleiðslu
- Vottorð seld til að fullnægja landsmarkmiðum samkvæmt RES tilskipun
- Vottorð seld til að auka sýnileika grænnar framleiðslu á reikningum raforkuframleiðanda sem er ekki byggð á lagaskyldu eða kvóta. Markaðurinn byggist á vali kaupanda sem vill bæta ímynd sína. Kaupandi getur svo nýtt þau til opinberrar birtingar, skapað græna ímynd og styrkt með því græna rafmagnsframleiðslu á innri markaðnum.
Skoðaðu vottanir Landsvirkjunar >>
