Grænt bókhald
Forrit til umhverfisstjórnunar
Landsvirkjun hefur látið hanna forrit til stjórnunar á grænu bókhaldi. Forritið fæst án endurgjalds hjá Landsvirkjun.
Grænt bókhald er skilgreint sem efnisuppgjör þar sem fram koma upplýsingar um hvernig umhverfismálum er háttað hjá viðkomandi fyrirtæki, aðallega í formi tölulegra upplýsinga. Græna bókhaldið á þannig að sýna mælanleg áhrif starfseminnar á umhverfið. Niðurstöður græna bókhaldsins eru settar fram í ársskýrslu um umhverfismál á svipaðan hátt og ársreikningar endurspegla færslu fjárhagsbókhalds og er því mikilvægur hlekkur í virkri umhverfisstjórnun fyrirtækisins.
Hjá Landsvirkjun hefur verið hannað forrit fyrir grænt bókhald. Forritið hefur fengið nafnið GB. Öll fyrirtæki sem áhuga hafa á að fylgjast með tölulegum upplýsingum um umhverfisáhrif af starfssemi sinni eru hvött til þess að nota þetta forrit. Hægt er að fá forritið sent á geisladiski án endurgjalds.
Sum fyrirtæki eru skyld til þess að skila árlega skýrslu um grænt bókhald, þetta forrit getur nýst þeim vel. Forritið getur einnig auðveldað öllum fyrirtækjum að fylgjast með og halda utan um umhverfisáhrif í starfsemi sinnar.
Af hverju Grænt bókhald?
Reglugerð um grænt bókhald 851/2002 hefur að markmiði að veita almenningi, félagasamtökum og stjórnvöldum upplýsingar um hvernig umhverfismálum er háttað þar sem starfsemi getur haft í för með sér mengun. Landsvirkjun ber ekki skylda til að halda grænt bókhald skv. reglugerðinni en hefur ákveðið að styðjast við sömu aðferðafræði við skráningu á umhverfisáhrifum starfsemi sinnar. GB kjörið til að halda utan um m.a. úrgang, spilliefni, losun út í andrúmsloftið, og auðlinda- og orkunotkun í rekstri fyrirtækja.
Grænt bókhald er opin hugbúnaður sem þýðir að hverjum sem er, er frjálst að bæta við virkni hans og aðlaga forritið að sínum eigin þörfum.
Með því að smella á tengilinn hér til vinstri má panta eintak af GB og fá geisladisk sendan innan fárra daga. Með því að skrá netfang sitt á póstlistann hér til vinstri má fá sendar tilkynningar um nýungar og uppfærslur á forritinu.
Ef óskað er eftir nánari upplýsingum um GB má hafa samband við Ragnheiði Ólafsdóttur hjá Landsvirkjun (ragnheidur hjá lv is), Áslaugu Friðriksdóttur hjá Sjá (aslaug hjá sja is) eða Hauk Garðarsson hjá Hafsjó (haukur hjá hafsjor is).
Tekið skal fram að notendur hugbúnaðarins GB nota hann á eigin ábyrgð. Ekki er hægt að draga Landsvirkjun til ábyrgðar ef eitthvað misferst eða skemmist þegar unnið er með hugbúnaðinn.
Kröfur til hug- og vélbúnaðar
Forritið GB er hægt að setja upp á tölvur með Windows stýrikerfi. Mikilvægt er að Microsoft IIS vefþjónn sé uppsettur á vélinni áður en uppsetning á GB hefst.
Gögnin sem skráð eru í GB eru vistuð í gagnagrunni. Ef valin er einföld uppsetning er notast við gagnagrunninn MySQL. Ef valin er venjuleg uppsetning má einnig notast við Microsoft SQL Server eða Oracle gagnagrunn.
GB þarf á Microsoft .Net Framework Version 2.0 að halda.
