Mat á umhverfisáhrifum

KárahnjúkarMarkmið laga um mat á umhverfisáhrifum er að tryggja að áður en tekin er ákvörðun um framkvæmdir sem kunna að hafa í för með sér umtalsverð áhrif á umhverfi, náttúruauðlindir og samfélag, hafi farið fram mat á þessum atriðum.

Leitað er eftir ábendingum um það sem má betur fara og því lýst til hvaða mótvægisaðgerða verði gripið til þess að lágmarka röskun. Í matsferlinu er réttur almennings til að gera athugasemdir tryggður og stjórnvöld fá yfirsýn við ákvarðanatöku um hvort leyfa skuli framkvæmdina.

Mat á umhverfisáhrifum Kárahnjúkavirkjunar er gott dæmi um þetta. Þar réðst Landsvirkjun í einar umfangsmestu rannsóknir sem farið hafa fram á hálendinu.

Allir Íslendingar eiga rétt á að gera athugasemdir við mat á umhverfisáhrifum sérhverrar framkvæmdar. Það stuðlar að lýðræðislegri ákvarðanatöku og opinni þjóðfélagsumræðu.

Landsvirkjun birtir á vef sínum upplýsingar um þær framkvæmdir fyrirtækisins sem fara í gegnum mat á umhverfisáhrifum.

 

Mat á umhverfisáhrifum

Mat á umhverfisáhrifum Kröfluvirkunar II: Frummatsskýrsla og viðaukar

Landsvirkjun áformar að reisa allt að 150 MWe jarðhitavirkjun við Kröflu í Skútustaðahreppi, Kröfluvirkjun II.  Á svæðinu er fyrir 60 MWe Kröflustöð þannig að með fyrirhugaðri nýrri virkjun verður orkuvinnsla á svæðinu að samanlögðu 210 MWe. 

Lesa meira
 

Sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum álvers, jarðhitavirkjana og háspennulína: Frummatsskýrsla

Alcoa, Þeistareykir ehf., Landsvirkjun og Landsnet hf., standa að sameiginlegu mati á umhverfisáhrifum álvers á Bakka við Húsavík, Þeistareykjavirkjunar, Kröfluvirkjunar II og háspennulína frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka. Fyrirhugaðar framkvæmdir eru í Norðurþingi, Þingeyjarsveit og Skútustaðahreppi.

Lesa meira
 

Kynningar- og athugasemdaferli fyrir sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum álvers, virkjana og flutningslína á Norðausturlandi hafið

Alcoa, Þeistareykir ehf, Landsvirkjun og Landsnet hafa undanfarin þrjú ár unnið að mati á umhverfisáhrifum fyrir álver á Bakka við Húsavík, Þeistareykjavirkjun, Kröfluvirkjun II og háspennulínur frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka.  Í samræmi við úrskurð umhverfisráðherra frá 31. júlí 2008 hafa fyrirtækin jafnframt í sameiningu unnið að sameiginlegu mati á umhverfisáhrifum þessara fjögurra framkvæmda. 

Lesa meira
 

Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica