Bjarnarflagsvirkjun
Landsvirkjun ráðgerir að reisa 90 MW jarðvarmavirkjun, Bjarnarflagsvirkjun, í Bjarnarflagi í Skútustaðahreppi í Suður-Þingeyjarsýslu. Auk virkjunarinnar er fyrirhugað að leggja 132 kV háspennulínu, Bjarnarflagslínu 1, frá Bjarnarflagsstöð að Kröflustöð til að tengja virkjunina raforkuflutningskerfi Landsnets.
Í matsskýrslu sem lögð var fram hjá Skipulagsstofnun í desember árið 2003 voru þrír staðsetningarkostir fyrir stöðvarhús og önnur mannvirki virkjunarinnar skoðaðir og bornir saman. Nokkrar mismunandi útfærslur á legu háspennulínu út frá staðsetningarkostum virkjunar voru einnig skoðaðar.
Skipulagsstofnun úrskurðaði um mat á umhverfisáhrifum Bjarnarflagsvirkjunar og Bjarnarflagslínu 1 í Skútustaðahreppi þann 26. febrúar 2004. Féllst stofnunin á framkvæmdina með skilyrðum.
Tengt efni:
Matsskýrsla Bjarnarflagsvirkjunar
Úrskurður Skipulagsstofnunar
