Búðarhálsvirkjun

Landsvirkjun hyggst reisa allt að 120 MW virkjun, Búðarhálsvirkjun, í Tungnaá við Búðarháls í Rangárvallasýslu og nýta þar um 40 m fall á milli frárennslisskurðar Hrauneyjafossstöðvar og Sultartangalóns.

Orkuvinnslugeta Búðarhálsvirkjunar er áætluð um 520 GWst á ári. Ennfremur ráðgerir Landsvirkjun að leggja 220 kV háspennulínu, Búðarhálslínu 1, frá stöðvarhúsi Búðarhálsvirkjunar að tengivirki við
Sultartangastöð, um 17 km leið.

Matsskýrsla var lögð fram hjá Skipulagsstofnun í janúar árið 2001. Samþykkti stofnunin matsáætlunina með skilyrðum.

Tengt efni:

Matsskýrsla Landsvirkjunar um umhverfisáhrif Búðarhálsvirkjunar 
Úrskurður Skipulagsstofnunar


Útlit síðu: