Rannsóknaboranir á vestursvæði Kröflu

Á árunum 2003 til 2004 fóru fram rannsóknaboranir á svonefndu vestursvæði, vestan Þríhyrninga við Kröflu í Skútustaðahreppi í Suður-Þingeyjarsýslu.

Tilgangur borananna var að afla upplýsinga um eiginleika jarðhitasvæðisins í Kröflu til að ganga úr skugga um það hvort vinnanlegan jarðhita væri að finna á vestursvæði.

Skipulagsstofnun fékk tillögu Landsvirkjunar að matsáætlun til umfjöllunar í mars 2002 og féllst stofnunin á tillöguna með nokkrum athugasemdum í apríl 2002. Var úrskurður stofnunarinnar kærður. Umhverfisráðherra staðfesti úrskurð Skipulagsstofnunar að viðbættu skilyrði.

Tengt efni:

Matsskýrsla Landsvirkjunar um rannsóknaboranir á vestursvæði Kröflu
Úrskurður Skipulagsstofnunar
Úrskurður Umhverfisráðuneytis


Útlit síðu: