Sultartangalína 3
Á árunum 2003 - 2004 lagði Landsvirkjun 400 kV háspennulínu, Sultartangalínu 3. Leið línunnar er frá tengivirki við Sultartangastöð að aðveitustöð Landsvirkjunar á Brennimel á Hvalfjarðarströnd.
Tilgangur með lagningu línunnar var að auka flutningsgetu raforkukerfisins að aðveitustöðinni á Brennimel, vegna mögulegrar aukningar orkunotkunar á þjónustusvæði hennar, svo sem vegna stækkunar Norðuráls á Grundartanga.
Einnig var línan mikilvægur áfangi í uppbyggingu 400 kV flutningskerfis Landsvirkjunar.
Skipulagsstornun féllst á framkvæmdina í júlí 2002 með skilyrðum. Var úrskurður Skipulagsstornunar kærður en staðfesti umhverfisráðherra úrskurðinn án breytinga.
Tengt efni:
Matsskýrsla vegna Sultartangalínu 3Úrskurður Skipulagsstofnunar vegna Sultartangalínu 3
Úrskurður umhverfisráðherra
