Sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum

Fyrirhugaðar framkvæmdir eru í Norðurþingi, Þingeyjarsveit og Skútustaðahreppi.

Samkvæmt úrskurði umhverfisráðherra frá 31. júlí 2008 eru framkvæmdirnar háðar sameiginlegu mati á umhverfisáhrifum, í samræmi við 2. mgr. 5. greinar í lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000. Matið nær til fjögurra ofangreindra framkvæmda.

Drög að tillögu að matsáætlun voru lögð fram hjá Skipulagsstofnun í febrúar 2009. Tillögu að matsáætlun fyrir sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum verkefnanna fjögurra var skilað inn til Skipulagsstofnunar 23. september samhliða nýjum tillögum að matsáætlunum fyrir Þeistareykjavirkjun og Kröfluvirkjun II.

Skipulagsstofnun hefur þegar fallist á matsáætlun Landsnets fyrir háspennulínur að Bakka og matsáætlun Alcoa fyrir álver á Bakka.

Allir hafa rétt til að kynna sér tillögu að matsáætlun og leggja fram athugasemdir. Senda skal skriflegar athugasemdir til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166 í Reykjavík.

Viðhengi:
Drög að tillögu að matsáætlun sameiginlegs umhverfismats
Tillaga að matsáætlun sameiginlega matsins


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica