Mat á umhverfisáhrifum Kröfluvirkunar II: Frummatsskýrsla og viðaukar

Landsvirkjun áformar að reisa allt að 150 MWe jarðhitavirkjun við Kröflu í Skútustaðahreppi, Kröfluvirkjun II.  Á svæðinu er fyrir 60 MWe Kröflustöð þannig að með fyrirhugaðri nýrri virkjun verður orkuvinnsla á svæðinu að samanlögðu 210 MWe. 

Landsvirkjun áformar að reisa allt að 150 MWe jarðhitavirkjun við Kröflu í Skútustaðahreppi, Kröfluvirkjun II.  Á svæðinu er fyrir 60 MWe Kröflustöð þannig að með fyrirhugaðri nýrri virkjun verður orkuvinnsla á svæðinu að samanlögðu 210 MWe.  Markmið Landsvirkjunar með byggingu nýrrar jarðhitavirkjunar í Kröflu er að nýta jarðhita á sjálfbæran hátt til framleiðslu rafmagns og sinna þannig þörfum markaðarins hverju sinni.

Framkvæmdin er matsskyld samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 m.s.br.  Hafin er opinber kynning á vegum Skipulagsstofnunar og má nálgast frummatsskýrslu hér á síðunni ásamt viðaukum. Í frummatsskýrslunni er fyrirhugaðri framkvæmd og framkvæmdasvæði lýst og gerð grein fyrir grunnástandi, helstu umhverfisþáttum og rannsóknum ásamt umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar.

Allir hafa rétt á að kynna sér frummatsskýrsluna og koma athugasemdum og fyrirspurnum á framfæri til Skipulagsstofnunar sbr. upplýsingar á heimasíðu stofnunarinnar.

Frestur til að gera athugasemdir er til 14. júní 2010.

 

Frummatsskýrsla

Kröfluvirkjun II: Allt að 150 MWe jarðhitavirkjun við Kröflu í Skútustaðahreppi

Viðaukar

1 - Greining landslags á fyrirhuguðum framkvæmdasvæðum í Þingeyjarsýslum

2 - Austaraselslindir: Afmörkun vatnsverndarsvæða

3 - Krafla: Dreifing efna í grunnvatni við grunnförgun skiljuvatns

4 - Gróðurfar á háhitasvæðum og fyrirhuguðum línu- og vegstæðum á Norðausturlandi

4 - Kortabók

5 - Gróðurfar á fyrirhuguðum borsvæðum við Kröflu

6 - Fuglalíf á framkvæmdasvæðum fyrirhugaðra háhitavirkjana í Þingeyjarsýslum

7 - Dreifingarspá fyrir brennisteinsvetni frá jarðvarmavirkjunum á Norðausturlandi

8 - Mat á áhrifum Kröfluvirkjunar II á ferðaþjónustu og útivist

9 - Hljóðkort

10 - Fornleifar: Deiliskráning vegna fyrirhugaðra framkvæmda

Senda grein


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica