Sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum álvers, jarðhitavirkjana og háspennulína: Frummatsskýrsla


Alcoa, Þeistareykir ehf., Landsvirkjun og Landsnet hf., standa að sameiginlegu mati á umhverfisáhrifum álvers á Bakka við Húsavík, Þeistareykjavirkjunar, Kröfluvirkjunar II og háspennulína frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka. Fyrirhugaðar framkvæmdir eru í Norðurþingi, Þingeyjarsveit og Skútustaðahreppi.

Samkvæmt úrskurði umhverfisráðherra frá 31. júlí 2008 eru framkvæmdirnar háðar sameiginlegu mati á umhverfisáhrifum, í samræmi við 2. mgr. 5. greinar í lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000.  Matið nær til fjögurra ofangreindra framkvæmda.  Í frummatsskýrslu eru settar fram helstu upplýsingar um framkvæmdirnar fjórar.  Gerð er grein fyrir grunnástandi, helstu umhverfisþáttum og rannsóknum ásamt sameiginlegum umhverfisáhrifum allra framkvæmda.

Frummatsskýrslu fyrir sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum verkefnanna fjögurra er skilað inn til Skipulagsstofnunar samhliða frummatsskýrslum fyrir Þeistareykjavirkjun, Kröfluvirkjun II, háspennulínur frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka og álveri á Bakka. 

Allir hafa rétt á að kynna sér frummatsskýrsluna og koma athugasemdum og fyrirspurnum á framfæri til Skipulagsstofnunar sbr. upplýsingar á heimasíðu stofnunarinnar.

Sækja frummatsskýrslu og viðauka – apríl 2010.

Frestur til að gera athugasemdir er til 14. júní 2010.

Tenglar á heimasíður viðkomandi fyrirtækja þar sem nálgast má frummatsskýrslur fyrir framkvæmdirnar fjórar eru eftirfarandi:


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica