Kröfluvirkjun II allt að 150 MW
Mat á umhverfisáhrifum Kröfluvirkjunar II stendur nú yfir
Landsvirkjun áformar að reisa allt að 150 MWe jarðhitavirkjun við Kröflu í Skútustaðahreppi, í Þingeyjarsýslu.
Verkefnið nefndist áður „Rannsóknaboranir við Kröflu“. Á árinu 2009 var heiti og eðli verkefnisins breytt að höfðu samráði við Skipulagsstofnun og Orkustofnun.
Umræddar rannsóknarboranir voru fyrirhugaðar til að kanna eiginleika jarðhitasvæðisins í Kröflu, en rannsóknirnar eru nauðsynlegur liður í öflun upplýsinga um hversu mikinn vinnanlegan jarðhita sé þar að finna og eiginleika hans. Að mati Skipulagsstofnunar var talið æskilegt m.t.t. mats á umhverfisáhrifum að meta umhverfisáhrif rannsóknaborana við Kröflu sérstaklega og nýta niðurstöður úr þeim við mat á umhverfisáhrifum Kröfluvirkjunar II.
Þetta mat Skipulagsstofnar var ekki ásættanleg niðurstaða að hálfu Landsvirkjunar og því var í samráði við Skipulagsstofnun leitað umsagnar Orkustofnunar í málinu. Í áliti Orkustofnunar frá 19. júní 2009 kom fram að fyrirliggjandi upplýsingar um afkastagetu auðlindarinnar væru nægilegar til þess að leggja mat á umhverfisáhrif hennar. Jafnframt taldi Orkustofnun eðlilegt að heimila frekari rannsóknaboranir þó að niðurstöður þeirra rannsókna muni ekki liggja fyrir við mat á umhverfisáhrifum virkjunar.
Í ljósi álits Orkustofnunnar óskaði Landsvirkjun eftir leiðbeiningum Skipulagsstofnunar um áframhaldandi málsmeðferð. Í svari Skipulagsstofnunar frá 21. júlí 2009. Kemur ma fram að stofnunin telur að æskilegra hefði verið með tilliti til mats á umhverfisáhrifum að meta umhverfisáhrif rannsóknarborana á Kröflusvæðinu sérstaklega og nýta niðurstöður úr þeim við mat á umhverfisáhrifum Kröfluvirkjunar II. Skipulagsstofnun kemst þó að þeirri niðurstöðu í ljósi rökstuðnings Landsvirkjunar og umsagnar Orkustofnunnar að hægt sé að ráðast í mat á umhverfisáhrifum Kröfluvirkjunar II, án þess að þar hafi farið fram frekari rannsóknarboranir. Að lokum taldi Skipulagsstofnun ekkert því til fyrirstöðu að framkvæmdaraðili dragi til baka tillögu að matsáætlun fyrir rannsóknaboranir.
Ákveðið var að fara að leiðbeiningum Skipulagsstofnunar og draga til baka tillögu að matsáætlun fyrir rannsóknaboranir á Kröflusvæðinu, sem lögð var inn til Skipulagsstofnunar þann 8. desember 2008 og var það gert þann 4. september 2009.
Hér á síðunni má nálgst drög að tillögu að matsáætlun ásamt tillögu að matsáætlun vegna þessa verkefnis. Í skýrslunum er fyrirhugaðri framkvæmd og framkvæmdasvæði lýst. Fjallað er um þá umhverfisþætti sem teknir verða fyrir í matinu. Einnig er tilgreint hvaða gögn eru fyrir hendi sem nýtt verða við matið og hvaða rannsóknir er fyrirhugað að ráðast í vegna mats á umhverfisáhrifum.
Viðhengi:
Tillaga að matsáætlun Kröfluvirkjunar II
Drög að tillögu að matsáætlun Kröfluvirkjunar II
Tengt efni:
Frétt um tillögu að matsáætlun Kröfluvirkjunar II
