Rannsóknaboranir í Gjástykki

Landsvirkjun áformar rannsóknaboranir í Gjástykki, í Þingeyjarsveit. Rannsóknirnar eru nauðsynlegur liður í öflun upplýsinga um hvort vinnanlegan jarðhita sé þar að finna.

Í júlí 2009 lagði Landsvirkjun fram frummatsskýrslu vegna rannsóknaborana í Gjástykki.

Áform um boranir á þessu svæði eru liður í samstarfi Landsvirkjunar og Þeistareykja ehf. um rannsóknir og könnun á virkjunarmöguleikum háhitasvæða á Norð­austurlandi, það er á Þeistareykjum, í Kröflu, Bjarnarflagi og Gjástykki.

Jarðhitakerfið í Gjástykki er talið ná yfir um 10 km2 svæði. Til að fá úr því skorið hvort um nýtanlegan jarðhita til vinnslu sé að ræða þarf að bora rannsóknaholur og afla með því nauðsynlegra gagna um eðli jarðhitans í Gjástykki. Samkvæmt stefnu viðkomandi sveitarfélaga verður Gjástykki aftast í framkvæmdaröð jarðhitavirkjana í Þingeyjarsýslum. Í fyrstu verður lögð áhersla á rannsóknir þar, þar með taldar rannsóknaboranir.

Í frummatsskýrslu er fjallað um umhverfisáhrif fyrirhugaðra rannsóknaborana. Frummatsskýrslan er í athugun hjá Skipulagsstofnun. Allir hafa rétt til að kynna sér frummatsskýrsluna og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir við frummatsskýrsluna skal senda til Skipulagsstofnunar.

Tengt efni:

Frummatsskýrsla vegna tilraunaborana í Gjástykki (júlí 2009)
Tillaga að matsáætlun vegna rannsóknaborana við Gjástykki (desember 2008)

 


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica