Mat á umhverfisáhrifum
Markmið laga um mat á umhverfisáhrifum er að tryggja að áður en tekin er ákvörðun um framkvæmdir sem kunna að hafa í för með sér umtalsverð áhrif á umhverfi, náttúruauðlindir og samfélag, hafi farið fram mat á þessum atriðum.
Leitað er eftir ábendingum um það sem má betur fara og því lýst til hvaða mótvægisaðgerða verði gripið til þess að lágmarka röskun. Í matsferlinu er réttur almennings til að gera athugasemdir tryggður og stjórnvöld fá yfirsýn við ákvarðanatöku um hvort leyfa skuli framkvæmdina.
Mat á umhverfisáhrifum Kárahnjúkavirkjunar er gott dæmi um þetta. Þar réðst Landsvirkjun í einar umfangsmestu rannsóknir sem farið hafa fram á hálendinu.
Allir Íslendingar eiga rétt á að gera athugasemdir við mat á umhverfisáhrifum sérhverrar framkvæmdar. Það stuðlar að lýðræðislegri ákvarðanatöku og opinni þjóðfélagsumræðu.
Landsvirkjun birtir á vef sínum upplýsingar um þær framkvæmdir fyrirtækisins sem fara í gegnum mat á umhverfisáhrifum.
