Rannsóknir

Á vegum Landsvirkjunar eru stundaðar margháttaðar rannsóknir á lífríki landsins, veðurfari, vatnafari, jöklum, jarðfræði og fjölmörgu öðru. Fjöldi vísindamanna, fyrirtækja og stofnana sinna þessari vinnu og má þar nefna deildir innan Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri og annarra menntastofnana, Orkustofnun, Náttúrufræðistofnun, Þjóðminjasafnið og Veðurstofuna.

Auk þess sinna starfsmenn Landsvirkjunar umfangsmiklum rannsóknum á jöklum og vatnafari.

Rannsóknir Landsvirkjunar eru nauðsynlegar til þess að afla grunnþekkingar og gagna sem nýtast við áætlanagerð, hönnun og mat á umhverfisáhrifum framkvæmda. Með rannsóknum er mikilvægra upplýsinga aflað sem nýtast við rekstur fyrirtækisins. Rannsóknir á vegum Landsvirkjunar eru einnig stundaðar til þess að vakta áhrif virkjana á umhverfið.

Skipta má rannsóknum Landsvirkjunar í fimm flokka.

Almennar virkjunarrannsóknir sem tengjast hönnun ákveðinna virkjana.

Í þennan flokk falla allar rannsóknir sem tengjast hönnun einstakra virkjana og þar með talið allar rannsóknir sem tengjast mati á umhverfisáhrifum viðkomandi framkvæmdarinna.

Almennar virkjunarrannsóknir sem tengjast ekki hönnun ákveðinna virkjana.

Í þennan flokk falla fyrirfram skilgreind rannsóknaverkefni, sem eru á sviði almennra virkjunarrannsókna og annarra rannsókna Landsvirkjunar sem tengjast ekki hönnun ákveðinna virkjana.

Rannsóknir sem tengjast vöktun og rekstri einstakra starfsstöðva.

Í þennan flokk falla fyrirfram skilgreind vöktunarverkefni á sviði umhverfismála sem tengjast rekstri einstakra starfsstöðva.

Rannsóknir á sviði umhverfis- og orkumála.

Í þennan flokk falla fyrirfram skilgreind rannsóknaverkefni á sviði umhverfis- og orkumála sem kostuð eru af Orkurannsóknarsjóði Landsvirkjunar. Auglýst er eftir rannsóknarverkefnum á hverju ári.

Rannsóknaverkefni nemenda í meistara- eða doktorsnámi.

Í þennan flokki falla verkefni efnilegra nemenda í meistara- eða doktorsnámi á sviði umhverfis- eða orkumála. Verkefnin eru styrkt af Orkurannsóknarsjóði Landsvirkjunar. Auglýst er eftir verkefnunum á hverju ári.

Senda grein


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica