Rannsóknir á fiskistofnum í Þjórsá
Landsvirkjun hefur um árabil unnið að rannsóknum á lífríki Þjórsár en ítarlegar rannsóknir hafa átt sér stað á fiskistofnum í ánni allt frá árinu 1973. Í upphafi stóð Veiðimálastofnun fyrir rannsóknunum en í seinni tíð hafa rannsóknirnar að mestu verið unnar á vegum Landsvirkjunar með Veiðmálastofnun sem helsta ráðgjafa.
Gerð hefur verið skýrsla um helstu einkenni fiskistofna í Þjórsá, breytingar í gegnum tíðina, áhrif fyrirhugaðra virkjana og mótvægisaðgerðir sem lagt er til að ráðist verði í verði ákveðið að reisa fyrirhugaðar virkjanir í neðri hluta Þjórsár. Helstu niðurstöður eru eftirfarandi:
- Ef ákveðið verður að ráðast í nýjar virkjanir í neðri hluta Þjórsár þá kann það að hafa neikvæð áhrif á laxastofninn í ánni, meðal annars vegna þess að búsvæði laxa munu minnka og afföll verða á seiðum.
- Landsvirkjun mun standa fyrir mótvægisaðgerðum til þess að draga eins mikið og mögulegt er úr neikvæðum áhrifum virkjananna á laxastofninn.
- Líta má á gerð laxastigans við Búðafoss árið 1991 sem snemmbúna mótvægisaðgerð gegn skerðingu á búsvæðum vegna fyrirhugaðra virkjana í neðri hluta Þórsár.
- Óvissa er um áhrif mótvægisaðgerða en miðað við fyrirliggjandi rannsóknir er það metið svo að afföll seiða við Urriðafossvirkjun verði minni en 5%.
- Verulega mun draga úr veiðiálagi verði stórfelldri netaveiði að mestu hætt. Sú breyting hefur jákvæð áhrif á laxastofna og eykur möguleika til stangveiða.
- Landsvirkjun bindur vonir við að ef ákveðið verður að ráðast í virkjanir í neðri hluta Þjórsár, þá muni mótvægisaðgerðir skila þeim árangri að áhrif virkjananna á stærð laxastofnsins verði óveruleg.
Annað útgefið efni
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, ritar grein um áhrif virkjana í Neðri Þjórsá á fiskistofna árinnar sem birtist í Fréttablaðinu þann 29. mars 2012.
Greinina má lesa hér: Neðri Þjórsá - áhrif virkjana á fiskistofna
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, í viðtali í síðdegisútvarpi Rásar 2 þann 9. janúar 2012.
Hlusta á viðtalið við Hörð >>
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, ritar grein um fiskistofna og virkjanir sem birtist í Fréttablaðinu þann 12. nóvember 2011 þar sem segir m.a.:
Verði það niðurstaðan að Alþingi ákveði að samþykkja Rammaáætlun um nýtingu vatnsafls- og jarðvarma með virkjanir í neðanverðri Þjórsá í nýtingarflokki, er það hlutverk Landsvirkjunar að leggja ríka áherslu á að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif af þeim virkjunum. Landsvirkjun bindur vonir við að þær mótvægisaðgerðir sem lagðar eru til byggðar á rannsóknum á fiskistofnum í Þjórsá muni skila þeim árangri að áhrif virkjananna á stærð laxastofnsins verði óveruleg. Rannsóknir munu halda áfram og fyrirtækið mun leggja sig fram við að taka tillit til nýrra og áður óþekktra rannsóknarniðurstaðna, og reyna eftir bestu getu að koma til móts við áhyggjuraddir vegna lífríkisins með mótvægisaðgerðum studdum traustum rannsóknarniðurstöðum.
Fiskistofnar og virkjanir >>
Skýrslur Veiðimálastofnunar á vatnasvæði Þjórsár neðan Búrfells unnar fyrir Landsvirkjun
Magnús Jóhannsson og Sigurður Guðjónsson, 1989. Rannsóknir á uppeldisskilyrðum lax í Þjórsá. Veiðimálastofnun, VMST-R/89027: 35 bls.
Magnús Jóhannsson, 1994. Fiskrannsóknir á vatnasvæði Þjórsár. Veiðimálastofnun, VMST-S/94005X: 14 bls.
Magnús Jóhannsson, 1994. Fiskrannsóknir á vatnasvæði Þjórsár árið 1994. Veiðimálastofnun, VMST-S/940012X: 21 bls.
Magnús Jóhannsson og Sigurður Guðjónsson, 1994. Árangur laxaseiðasleppinga ávatnasvæði Þjórsár árin 1988-1992. VMST-S/94006: 8 bls.
Magnús Jóhannsson, 1995. Fiskrannsóknir á vatnasvæði Þjórsár árið 1995. Veiðimálastofnun, VMST-S/95004X: 24 bls.
Magnús Jóhannsson, 1996. Fiskrannsóknir á vatnasvæði Þjórsár árið 1996. Veiðimálastofnun, VMST-S/96003.
Magnús Jóhannsson, 1997. Fiskrannsóknir á vatnasvæði Þjórsár árið 1997. Veiðimálastofnun, VMST-S/97004: 25 bls.
Magnús Jóhannsson, 1998. Fiskrannsóknir á vatnasvæði Þjórsár 1998. Veiðimálastofnun, VMST-S/98007: 23 bls.
Magnús Jóhannsson, 1999. Fiskrannsóknir á vatnasvæði Þjórsár 1999. Veiðimálastofnun VMST-S/99007: 22 bls.
Magnús Jóhannsson og Benóný Jónsson, 2000. Fiskrannsóknir á vatnasvæði Þjórsár árið 2000. Veiðimálastofnun VMST-S/00009: 23 bls.
Magnús Jóhannsson, Benóný Jónsson, Erla Björk Örnólfsdóttir, Sigurður Guðjónsson, og Ragnhildur Magnúsdóttir, 2002. Rannsóknir á lífríki Þjórsár og þveráa hennar vegna virkjana í Þjórsá neðan Búrfells. Veiðimálastofnun VMST-S/02001: 124 bls
Magnús Jóhannsson og Benóný Jónsson, 2002. Fiskrannsóknir á vatnasvæði Þjórsár árið 2002, Veiðimálastofnun VMST-S/02009: 30 bls.
Magnús Jóhannsson, Benóný Jónsson og Guðni Guðbergsson, 2004. Fiskrannsóknir á vatnasvæði Þjórsár árið 2003. Veiðimálastofnun, VMST-S/04003: 50 bls.
Magnús Jóhannsson, Benóný Jónsson og Guðni Guðbergsson, 2005. Fiskrannsóknir á vatnasvæði Þjórsár árið 2004. Veiðimálastofnun, VMST-S/05001: 53 bls.
Magnús Jóhannsson, Benóný Jónsson og Guðni Guðbergsson, 2006. Fiskrannsóknir á vatnasvæði Þjórsár árið 2005. Veiðimálastofnun, VMST-S/06001, LV-2006/017: 53 bls.
Magnús Jóhannsson og Benóný Jónsson, 2007. Fiskrannsóknir á vatnasvæði Þjórsár árið 2006. Áfangaskýrsla 4. Veiðimálastofnun VMST/07012, LV-2007-050: 49 bls.
Magnús Jóhannsson og Benóný Jónsson, 2007. Fiskrannsóknir á vatnasvæði Þjórsár árið 2007. Áfangaskýrsla 5. Veiðimálastofnun VMST/07032, LV-2007/089: 43 bls.
Magnús Jóhannsson, Benóný Jónsson og Sigurður Guðjónsson, 2008. Fiskrannsóknir á vatnasvæði Þjórsár. Samantekt rannsókna árin 2003 til 2007. Veiðimálastofnun VMST/08020, LV-2008/086: 71 bls.
Magnús Jóhannsson og Benóný Jónsson, 2009. Fiskrannsóknir á vatnasvæði Þjórsár árið 2008. Veiðimálastofnun VMST/09009, LV2009/009: 51 bls.
Benóný Jónsson og Magnús Jóhannsson, 2008. Fiskrannsóknir í Steinslæk 2008. Veiðimálastofnun VMST/08032: 14 bls.
Magnús Jóhannsson og Benóný Jónsson, 2009. Fiskrannsóknir á vatnasvæði Þjórsár árið 2009. Veiðimálastofnun VMST/09052, LV2009/139: 51 bls.
Magnús Jóhannsson og Benóný Jónsson, 2011. Fiskrannsóknir á vatnasvæði Þjórsár árið 2010. Veiðimálastofnun VMST/11037, LV-2011/085: 56 bls.
Aðrar heimildir
Jón Ólafsson, Sólveig R. Ólafsdóttir og Jóhannes Briem 2008. Vatnsföll og vistkerfi strandsjávar. Náttúrufræðingurinn 76(3-4), bls. 95-108.
Unnsteinn Stefánsson og Jón Ólafsson 1991. Nutrients and fertility of Icelandic waters. Rit Fiskideildar Vol. XII No. 3
