Orkurannsóknasjóður

Stjórn Orkurannsóknasjóðs Landsvirkjunar auglýsir eftir umsóknum í sjóðinn einu sinni á ári. Árið 2011 var styrkjum úthlutað til 44 verkefna og nam upphæðin sem var til úthlutunar 56 milljónum króna.

Styrkveitingar sjóðsins miða að því að gera fjárframlög Landsvirkjunar til rannsókna skilvirkari og sýnilegri, og tryggja að þær rannsóknir sem sjóðurinn styrkir samrýmist umhverfisstefnu Landsvirkjunar.

Styrkveitingar sjóðsins falla í þrjá flokka:

Styrkir til nemenda í meistara- eða doktorsnámi
Styrkjunum er ætlað að hvetja efnilega nemendur til náms á sviði umhverfis- og orkumála og að veita þeim viðurkenningu sem þegar hafa sýnt góðan árangur í meistara- eða doktorsnámi.

Rannsóknir á sviði umhverfis- og orkumála
Auglýst er eftir umsóknum frá háskólum, stofnunum, fyrirtækjum og einstaklingum um styrki úr þessum flokki. Styrkir eru veittir til hluta þess kostnaðar sem hlýst af vinnu sérfræðinga, þátttöku meistara- og doktorsnema, og öðrum útgjöldum sem verkefnið þarfnast.

Almennar virkjunarrannsóknir
Landsvirkjun fer með úthlutanir í þessum flokki samkvæmt eigin úthlutunarreglum.

Umsóknarfrestur er til miðnættis 9. janúar 2012.

Umsóknareyðublöð:

Umsókn um námsstyrk A flokkur
Umsókn um verkefnisstyrk B flokkur

Tengt efni:

Auglýsing um styrkveitingar úr sjóðnum 2012
Úthlutunarreglur orkurannsóknasjóðs Landsvirkjunar
Stofnskrá orkurannsóknasjóðs Landsvirkjunar


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica