Úthlutanir 2010
Árið 2010 úthlutaði Landsvirkjun 58 milljónum króna í náms- og verkefnastyrki.
Flokkur A Námsstyrkir
Til doktorsnáms
Heimir Hjartarson verkfræðingur
Heimir er í doktorsnámi við iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands. Markmið verkefnis hans er að hanna betri gufuskiljur fyrir tvífasa vökva frá vatnsríkum jarðhitakerfum.
Styrkur 1.000.000,- kr.
Nikola Trbojevic fornleifafræðingur
Nikola er í doktorsnámi við sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands. Verkefni hans nefnist „Áhrif landnáms á skóglendi Íslands”. Þar verða skoðuð gögn um fornleifar, sagnfræði og umhverfi sem lýsa nýtingu upprunalegs skóglendis og áhrifum hennar á þróun íslensks samfélags.
Styrkur 1.000.000,- kr.
Oddgeir Guðmundsson verkfræðingur
Oddgeir er í doktorsnámi við iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands og samvinnu við tvo háskóla í Frakklandi. Verkefni hans verður að þróa líkan til að greina merki um minnkandi varmaflutning í varmaskiptum vegna útfellinga.
Styrkur 1.000.000,- kr.
Olga Kolbrún Vilmundardóttir landfræðingur
Olga Kolbrún er í doktorsnámi við líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands. Hluti námsins mun fara fram við Ohio State University í Bandaríkjunum. Markmið rannsóknarinnar er að útbúa líkan fyrir kolefnisbindingu jarðvegs og jarðvegsgæði lands sem komið hefur undan hörfandi jökuljöðrum við sunnanverðan Vatnajökul.
Styrkur 1.000.000,- kr.
Victor Knútur Victorsson verkfræðingur
Victor er í doktorsnámi við Stanfordháskóla í Bandaríkjunum í samvinnu við American Institution of Steel Construction. Verkefni hans er á sviði jarðskjálftaverkfræði og stefnir að endurbótum í hönnun, greiningu og hermun á stálvirkjum undir jarðskjálftaálagi.
Styrkur 1.000.000,- kr.
Til meistaranáms
Baldvin Ingi Sigurðsson fjármála-/iðnaðarverkfræðingur
Baldvin er í meistaranámi við iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands í samvinnu við tæknideild Landsvirkjunar. Markmið verkefnisins er að velja með bestunaraðferðum þau viðhalds- og endurbótaverkefni sem Landsvirkjun ætti að ráðast í samkvæmt markmiðum um hámörkun á arðsemi og gæðum viðhalds, að teknu tilliti til þess fjár sem til umráða er í slík verkefni.
Styrkur 500.000,- kr.
Daði Þorsteinn Sveinbjörnsson eðlisfræðingur
Daði er í meistaranámi við Niels Bohr Institut Kaupmannahafnarháskóla en vinnur að verkefni sínu á Risö rannsóknastofnun Tækniháskóla Danmerkur. Verkefnið snýst um þróun málmhýdríða fyrir vetnisgeymslu og fastefnisrafvaka.
Styrkur 500.000,- kr.
Daniel John Drader olíuverkfræðingur
Daniel er í meistaranámi við iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands í samvinnu við Landsvirkjun og Jarðboranir hf. Markmið verkefnisins er að kanna möguleika á því að dæla upp jarðhitavökva úr háhitaborholum án þess að hann sjóði.
Styrkur 500.000,- kr.
Helga Rakel Guðrúnardóttir umhverfis- og orkufræðingur
Helga er í meistaranámi við jarðfræðideild Stokkhólmsháskóla og auðlindadeild Háskólans á Akureyri í samstarfi við Veðurstofu Íslands, Raunvísindastofnun o. fl. Markmið verkefnisins er að þróa efnavöktunarkerfi til að spá fyrir um jarðskjálfta í Flateyjar-Húsavíkur misgenginu.
Styrkur 500.000,- kr.
Jón Sigurðsson tæknifræðingur
Jón er í meistaranámi í byggingarverkfræði - framkvæmdastjórnun við Háskólann í Reykjavík. Verkefni hans snýst um innleiðingu umhverfisvottunarkerfa mannvirkja í rekstri á Íslandi og áhrif þeirra á orkunotkun, innivist og lífsferilskostnað (LCC).
Styrkur 500.000,- kr.
Lára Guðmundsdóttir umhverfisfræðingur
Lára er í meistaranámi við viðskipta- og raunvísindasvið Háskólans á Akureyri í samvinnu við Náttúrufræðistofnun Íslands. Hún mun beita sameindaerfða- og stofnerfðafræðilegum aðferðum til að meta breytileika og skyldleika fálka á óðulum. Byggt verður á fjöðrum sem safnað hefur verið á síðustu 25 árum.
Styrkur 500.000,- kr.
Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir fjármála-/iðnaðarverkfræðingur
Margrét er í meistaranámi við Orkuskólann (eða School of Renewable Energy Resources) á Akureyri, í samvinnu við Chalmers Tækniháskólann í Gautaborg og Mjólkursamsöluna. Markmið verkefnisins er að greina möguleika til orkusparnaðar í iðnaðarferlum í mjólkuriðnaði og efla meðvitund um orkunotkun.
Styrkur 500.000,- kr.
Sigurður Unnar Sigurðsson tæknifræðingur
Sigurður er í meistaranámi í byggingarverkfræði við Háskólann í Reykjavík í samvinnu við verkfræðistofuna Mannvit, Verkefnið verður stundað við Rannsóknamiðstöð Háskóla Íslands í jarðskjálftaverkfræði á Selfossi. Markmið verkefnisins er að greina hegðun steyptra burðarvirkja vegna jarðhröðunar á upptakasvæðum jarðskjálfta.
Styrkur 500.000,- kr.
Sóley Emilsdóttir verkfræðingur
Sóley stefnir á meistaranám í orkuverkfræði við Chalmers Tækniháskólann í Gautaborg. Markmið námsins er að gera nemendum kleift að þróa tækni og kerfi sem fullnægja orkuþörfum ásamt því að taka tillit til umhverfis-, þjóðfélags- og efnahagslegra þátta.
Styrkur 500.000,- kr.
Sóley Kaldal eðlisfræðingur
Sóley er í meistaranámi í áhættu- og öryggisverkfræði við Tækniháskólann í Lundi í samvinnu við Brunamálastofnun. Verkefnið snýst um áfallaþol neyðartilvika og tekur sem dæmi neyðartilvik innan leitar- og björgunarsvæðisins í sjónum kringum Ísland þar sem vaxandi hætta er á alvarlegum umhverfisslysum.
Styrkur 500.000,- kr.
Flokkur B Verkefnastyrkir
Styrkt voru 15 ný verkefni og 14 framhaldsverkefni. Heildarupphæð styrkjanna nemur um 48 milljónum króna. Verkefnin eru mjög fjölbreytt, flest á sviði náttúru- og umhverfisrannsókna og nokkur um nýjungar í tækni.
1. Nýir styrkir
Modem (Multi-temporal Digital Elevation Modelling and change quantification in Icelandic glacial sedimentary environments)
Verkefnisstjóri: Anders Schomacker, Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands
Styrkur 1.350.000,- kr.
Metró
Verkefnisstjóri: Björn Kristinsson, Verkfræðistofnun Háskóla Íslands
Styrkur 1.500.000,- kr.
Skógarkol: Mats- og vottunarkerfi fyrir kolefnisbindingu í íslenskum skógum
Verkefnisstjóri: Brynhildur Bjarnadóttir, Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins – Mógilsá, Akureyri
Styrkur 2.500.000,- kr.
Crustal effects of Hálslón
Verkefnisstjóri: Freysteinn Sigmundsson, Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands
Styrkur 1.500.000,- kr.
Mathematical modelling of energy flow in a geothermal reservoir
Verkefnisstjóri: Halldór Pálsson, Verkfræðideild Háskóla Íslands
Styrkur 1.500.000,- kr.
Hlutverk mosa í íslenskum hálendisvistkerfum
Verkefnisstjóri: Ingibjörg Svala Jónsdóttir, líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands
Styrkur 3.500.000,- kr.
Rafbílar fyrir almenning
Verkefnisstjóri: Jón Björn Skúlason, Íslensk NýOrka
Styrkur 700.000,- kr.
Lágmarksrennsli í árfarvegum, neðan virkjana- eða vatnsveituframkvæmda
Verkefnisstjóri: Jón Snæbjörnsson, Austurey II, Laugardal, Bláskógabyggð
Styrkur 1.000.000,- kr.
Orkutap í vélboruðum vatnsrásum
Verkefnisstjóri: Kristín Martha Hákonardóttir, Verkís verkfræðistofa
Styrkur 3.500.000,- kr.
Mikilvægi fræþroska alaskalúpínu fyrir stjórnun á útbreiðslu og dreifingu tegundarinnar
Verkefnisstjóri: Kristín Svavarsdóttir, Landgræðsla ríkisins
Styrkur 800.000,- kr.
Jarðskjálftar og aflögun vegna kvikuhreyfinga í Heklu
Verkefnisstjóri: Kristín S. Vogfjörð, Veðurstofu Íslands
Styrkur 3.500.000,- kr.
Sjávarfallavirkjun í Hornafirði
Verkefnisstjóri: Ólöf Rós Káradóttir, Verkís verkfræðistofa
Styrkur 1.750.000,- kr.
Tæringarrannsóknir í háhitaborholum við Kröfluvirkjun
Verkefnisstjóri: Sigrún N. Karlsdóttir, Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Styrkur 2.000.000,- kr.
Mælingar á yfirborði og yfirborðsbreytingum íslenskra jökla með leysimælingum
Verkefnisstjóri: Tómas Jóhannesson, Veðurstofu Íslands
Styrkur 3.500.000,- kr.
Gefjunarstífla í Glerá: Saga vatnsaflsnýtingar, orkumála og iðnaðar á Akureyri
Verkefnisstjóri: Þorsteinn E. Arnórsson, Hollvinafélag Iðnaðarsafnsins á Akureyri
Styrkur 600.000,- kr.
2. Framhaldsstyrkir
Meðhöndlun og endurheimt staðargróðurs á framkvæmdasvæðum
Verkefnisstjóri: Árni Bragason, Verkfræðistofan EFLA ehf
Styrkur 1.500.000,- kr.
Efniseiginleikar lausra jarðlaga og jarðfyllinga
Verkefnisstjóri: Bjarni Bessason, Verkfræðistofnun Háskóla Íslands
Styrkur 1.500.000,- kr.
Eiginleikar tvífasa streymis vatns og gufu i jarðlögum
Verkefnisstjóri: Guðrún A. Sævarsdóttir, Verkfræðideild H.Í.
Styrkur 1.500.000,- kr.
Nýjar leiðir til að framleiða kísil-sólarhlöð
Verkefnisstjóri: Halldór G. Svavarsson, Háskólinn í Reykjavík
Styrkur 750.000,- kr.
Umhverfisrannsóknir i Lagarfljóti
Verkefnisstjóri: Hrund Andradóttir, Verkfræðideild H.Í.
Styrkur 3.000.000,- kr.
Gönguhegðun urriða i Efra-Sogi og Úlfljótsvatni
Verkefnisstjóri: Jóhannes Sturlaugsson, Laxfiskar ehf.
Styrkur 1.500.000,- kr.
Jarðskjálftasvörun tækja og búnaðar í mannvirkjum
Verkefnisstjóri: Jónas Þór Snæbjörnsson, Rannsóknamiðstöð Háskóla Íslands í jarðskjálftaverkfræði
Styrkur 1.500.000,- kr.
Örlög brennisteinsvetnis (H2S) frá jarðvarmavirkjunum
Verkefnisstjóri: Sigurður Magnús Garðarsson, Umhverfis- og byggingarverkfræðideild H.Í.
Styrkur 3.000.000,- kr.
Rætur háhitasvæða: Lekt bergs, ummyndun og kvikugös - jarðefnafræðileg athugun
Verkefnisstjóri: Stefán Arnórsson, Jarðvísindastofnun H.Í.
Styrkur 3.200.000,- kr.
Efniseiginleikar borholusteypublandna með hliðsjón af þrýstings- og hitastigsbreytingum
Verkefnisstjóri: Sunna Ólafsdóttir Wallevik, Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Styrkur 1.000.000,- kr.
Osmósuvirkjanir á íslenskum vatnsföllum
Verkefnisstjórar: Þorsteinn I. Sigfússon og Guðbjörg H. Óskarsdóttir, Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Styrkur 1.500.000,- kr.
Að auki eru þrjú verkefni sem njóta styrks frá úthlutun 2009 en framkvæmd þeirra hefur frestast.
