Úthlutanir úr orkurannsóknasjóði Landsvirkjunar árið 2011

Til doktorsnáms, ein milljón króna hver:

Ásbjörg Kristinsdóttir verkfræðingur.  Doktorsnemi við verkfræði- og viðskiptafræðideildir Massachusetts Institute of Technology í Bandaríkjunum.

Bjarni Már Magnússon  lögfræðingur Doktorsnemi við Lagaskóla Háskólans Edinborg.

Lárus Þorvaldsson vélaverkfræðingur Doktorsnemi við iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands.

Silja Rán Sigurðardóttir fjármálaverkfræðingur.  Doktorsnemi við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík.

Til meistaranáms, 500 þúsund krónur hver:

Bjarni Freyr Guðmundsson rafmagnsverkfræðingur.  Meistaranemi við rafmagnsverkfræðideild Danmarks Tekniske Universitet Lyngby í Danmörku.

Brita Kristina Berglund landfræðingur.  Meistaranemi við umhverfisdeild Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri

Einar Ó Þorleifsson landfræðingur.  Meistaranemi við líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands.

Elke Wald landslagsarkitekt.  Meistaranemi við líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands og starfar á Rannsókna- og fræðasetri Háskóla Íslands á Selfossi.

Grettir Heimisson stærðfræðingur.  Meistaranemi í tölfræði við raunvísindadeild Háskóla Íslands.

Gunnar Guðmundsson rafmagnsverkfræðingur Meistaranemi í rafmagnsverkfræði við Danmarks Tekniske Universitet í Lyngby.

Hannes Arnórsson viðskiptafræðingur Meistaranemi við RES Orkuskólann á Akureyri í samstarfi við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri.

Heiða Gehringer líffræðingur.  Meistaranemi við líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands og starfar á Rannsókna- og fræðasetri Háskóla Íslands á Selfossi.

Hjörtur Brynjarsson byggingarverkfræðingur.  Meistaranemi við orkutæknideild Kungliga Tekniska Högskolan í Stokkhólmi.

Hrönn Brynjarsdóttir umhverfis- og orkufræðingur.  Meistaranemi við viðskipta- og raunvísindadeild Háskólans á Akureyri.

Jóhannes Þorleiksson rafmagnsverkfræðingur.  Meistaranemi við upplýsingatækni- og rafmagnsverkfræðideild Eidesgenössische Technische Hochschule í Zürich í Sviss.

Kevin Franke umhverfisverkfræðingur.  Meistaranemi við umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands.

Magnea Magnúsdóttir líffræðingur.  Meistaranemi við umhverfisdeild Landbúnaðarháskóla Íslands á Keldnaholti.

Mauricio Andrés Teke Millachine iðnaðarverkfræðingur.  Meistaranemi við iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunar­fræði­deild Háskóla Íslands í samvinnu við verkfræðistofuna Verkís.

Minney Sigurðardóttir jarðfræðingur.  Meistaranemi við jarðvísindadeild Háskóla Íslands.

Ólöf Andrjesdóttir vélaverkfræðingur.  Meistaranemi við vélaverkfræðideild Eidesgenössische Technische Hochschule í Zürich í Sviss.

Páll Viggó Bjarnason byggingarverkfræðingur til meistaranáms við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík.

Vigfús Arnar Jósefsson vélaverkfræðingur.  Meistaranemi við iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands og orkutæknideild Kungliga Tekniska Högskolan í Stokkhólmi.

Styrkir til nýrra rannsóknarverkefna

Andri Stefánsson, Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands.  Uppruni og efnahvörf brennisteins í jarðhitakerfum. Styrkur að upphæð þrjár milljónir króna.

Árni Einarsson, Náttúrurannsóknastöðinni við Mývatn Langtímarannsókn á þörungablóma í Mývatni. Styrkur að upphæð 2,6 milljónir króna.

Björn Erlingsson, Keilir. Miðstöð vísinda fræða og atvinnulífs.  Hermir framleiðslu úr sjávarfallaorku fyrir landgrunn Íslands. Styrkur að upphæð 2,5 milljónir króna.

Einar Sveinbjörnsson, Veðurvaktin ehf.  Hita- og úrkomubreytingar áratuginn 2001-2010 og langtímaleitni sömu veðurþátta. Styrkur að upphæð 2,5 milljón króna.

Guðrún Marteinsdóttir, Háskóla Íslands.  Vistfræðileg tengsl ferskvatnsrennslis til sjávar og hrygningar og klaks þorsks. Styrkur að upphæð 2,5 milljón króna.

Ívar Örn Benediktsson, Háskóla Íslands, Jarðvísindastofnun.  Stærstu jökulgarðar á Íslandi - setgerð, bygging og myndun. Styrkur að upphæð 1,4 milljónir króna.  

Jón Guðmundsson, líffræðingur Frærækt níturbindandi plöntutegunda. Styrkur að upphæð 1,0 milljón króna.  

Oddur Vilhelmsson, Háskólanum á Akureyri.  Örverulífríki Jökulsár á Fjöllum. Styrkur að upphæð 1,23 milljón króna.

Ragnar Sigbjörnsson, Rannsóknamiðstöð Háskóla Íslands á Selfossi.  Ground motion prediction equations for Europe and the Middle-East. Styrkur að upphæð 2 milljónir króna. 

Yngvi Björnsson, Háskólanum í Reykjavík.  Nýjar aðferðir við mat á vinnslugetu vatnsaflsvirkjana. Styrkur að upphæð 2,5 milljónir króna.

Þröstur Þorsteinsson, Háskóla Íslands, Jarðvísindastofnun.  Botnskrið Brúarjökuls. Styrkur að upphæð 1,05 milljón króna.

Styrkir til framhalds í rannsóknarverkefnum:

Anders Schomacker, Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands.  Modem (Multi-temporal Digital Elevation Modelling and change quantification in Icelandic glacial sedimentary environments. Styrkur að upphæð 1,36 milljón króna.

Björn Kristinsson, Háskóla Íslands.  Metró. Gerð verður frumkönnun á gagnsemi jarðlestakerfa fyrir almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Styrkur að upphæð 1,5 milljón króna.  

Brynhildur Bjarnadóttir, Skógrækt ríkisins.  Skógarkol: Mats- og vottunarkerfi fyrir kolefnisbindingu í íslenskum skógum. Styrkur að upphæð 2,0 milljónir króna.

Freysteinn Sigmundsson, Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands.  Crustal effects of Hálslón: Three-dimensional model of Earth response and crustal movements. Styrkur að upphæð 1,2 milljónir króna.

Guðrún A. Sævarsdóttir, Háskólanum í Reykjavík.  Eiginleikar tvífasa streymis gufu og vatns í jarðlögum. Styrkur að upphæð 3,0 milljónir króna.

Halldór Pálsson, Háskóli Íslands.  Mathematical modelling of energy flow in a geothermal reservoir. Styrkur að upphæð 1,5 milljónir króna.

Halldór G. Svavarsson, Háskólanum í Reykjavík.  Kísil-nanóvírar til notkunar í sólarhlöð. Styrkur að upphæð 1,8 milljónir króna.

Hrund Andradóttir, Háskóla Íslands.  Umhverfisrannsóknir í Lagarfljóti. Styrkur að upphæð 3,0 milljónir króna.

Sunna Ólafsdóttir Wallevik, Nýsköpunarmiðstöð Íslands.  Efniseiginleikar borholu­steypublandna með hliðsjón af þrýstings- og hitastigsbreytingum. Styrkur að upphæð 1,0 milljón króna.

Tómas Jóhannesson, Veðurstofu Íslands.  Mælingar á yfirborði og yfirborðsbreytingum íslenskra jökla með leysimælingum. Styrkur að upphæð 3,5 milljónir króna.

Þorsteinn E. Arnórsson, Hollvinafélagi Iðnaðarsafnsins á Akureyri.  Gefjunarstífla í Glerá: saga vatnsaflsnýtingar, orkumála og iðnaðar á Akureyri. Styrkur að upphæð 600 þúsund krónur.


Alls barst 41 ný umsókn sjóðnum og tólf framhaldsumsóknir til verkefnastyrkja með samanlögðum óskum um 142 m.kr. en til ráðstöfunar voru tæpar 43 m.kr. Alls bárust 42 umsóknir til námsstyrkja, til meistara- og doktorsnáms en til ráðstöfunar í þeim flokki voru 13 m.kr. Þar sem umsóknir um styrki voru ríflega þrisvar sinnum hærri en ráðstöfunarféð er ljóst að sjóðnum var ekki unnt að styrkja mörg góð verkefni að þessu sinni.

Markmið Orkurannsóknasjóðs er að veita styrki til námsmanna og rannsóknarverkefna á sviði umhverfis- og orkurannsókna. Sjóðurinn var stofnaður árið 2007 og er úthlutunin nú fjórða úthlutun sjóðsins.


Útlit síðu: