Samfélagsverkefni
Landsvirkjun kemur að ýmsum samfélags- og samstarfsverkefnum sem varða umhverfismál.
Landsvirkjun leggur lið samfélagsmálefnum sem efla hag þeirra svæða þar sem fyrirtækið starfar. Í því skyni vill fyrirtækið eiga samstarf um verkefni þar sem hagsmunir samstarfsaðilanna og Landsvirkjunar fara saman og báðir leggja sitt af mörkum. Landsvirkjun leggur áherslu á að bæta innviði ferðamennsku og útivistar á virkjunarsvæðum og vill efla ferðaþjónustu þar með samstarfi á sviði menningarmál m.a. með því að halda sýningar og aðra viðburði í starfsstöðvum fyrirtækisins.
Síðastliðin ár hefur Landsvirkjun auglýst eftir samstarfsaðilum undir nafninu „Margar hendur vinna létt verk“ og býður þar fram vinnu sumarvinnuflokka sinna við uppbyggingu á sviði ferðamála og umhverfismála. Fjölmargar umsóknir berast ár hvert frá sveitarfélögum, félagasamtökum og aðilum í ferðaþjónustu um land allt. Tekist hefur að sinna þeim flestum og koma þannig á samstarfi við ótal aðila sem byggja má á í framtíðinni.
