Margar hendur vinna létt verk

Landsvirkjun hefur um áratugi ráðið fjölda ungmenna á aldrinum 16 - 20 ára til starfa á sumrin. Þau leysa af hendi mikilvæg viðhalds og umhverfisverkefni á starfsstöðvum Landsvirkjunar um land allt. Þetta er mikilvægt framlag til atvinnumála skólafólks og er einnig vettvangur til að kynna starfsemi fyrirtækisins og orkumál almennt fyrir íbúum í nágrenni starfsstöðvanna og efla samstarf við þá.

Undanfarin ár hefur Landsvirkjun auglýst eftir samstarfsaðilum undir nafninu „Margar hendur vinna létt verk“ og býður þar fram vinnu sumarvinnuflokka sinna við uppbyggingu á sviði ferðamála og umhverfismála. Fjölmargar umsóknir hafa borist frá sveitarfélögum, félagasamtökum og aðilum í ferðaþjónustu um land allt. Tekist hefur að sinna þeim flestum og koma þannig á samstarfi við ótal aðila sem byggja má á í framtíðinni.

Fjöldi aðila hefur verið í samstarfi við Landsvirkjun í verkefninu Margar hendur vinna létt verk, eftirfarandi er listi yfir samstarfsaðila á árinu 2009.

  • Ásahreppur – Lagfæring á göngustíg í Eyvindaveri.
  • Bláskógabyggð – Endurgerð og lagfæringar á göngustígum við Laugarvatn.
  • Bólstaðarhlíðarkirkja – Sláttur og hirðing á kirkjugarði.
  • Brahma Kumais, andleg fræðslumiðstöð – Stígagerð við Úlfljótsvatn.
  • Brimnesskógar félag – Gróðursetning í Brimnesskógi.
  • Dropinn, styrktarfélag sykursjúkra barna – Stuðningur (vinnuframlag) við starfsemina.
  • Ferðafélag Fljótsdalshéraðs – Stikun gönguleiða við ,,Perlur Fljótdalshéraðs“.
  • Félag ferðaþjónustunnar í Skagafirði – Stígagerð við Flugumýri.
  • Flóahreppur – Endurgerð og lagfæringar á göngustígum á þjóðleiðinni um Ásaveg.
  • Golfklúbbur Kiðjabergs í Grímsnesi – Undirbúningur fyrir Íslandsmót í holukeppni, lagfæringar á göngustígum og snyrting á svæði við golfvöll.
  • Golfklúbbur Vatnsleysustrandar – Stígagerð, lagfæringar á stígum o.fl.
  • Golfklúbburinn Ós – Umhirða og lagfæring á golfvelli.
  • Hekluskógar – Gróðursetning og áburðardreifing í Þjórsárdal.
  • Hofteigskirkjugarður – Sláttur og hirðing á kirkjugarði.
  • Hótel Háland – Umhirða við hótelið, sláttur o.fl.
  • Húfa ehf – Lagfæringar á göngustígum við Laugarvatn.
  • Húnavatnshreppur – Sláttur og hirðing íþrótta – og útivistarsvæða.
  • Höttur Rekstrafélag – Umhirða í kringum Vilhjálmsvöll á Egilsstöðum.
  • Kirkjugarður Auðkúlukirkju – Sláttur og hirðing á kirkjugarði.
  • Mosfellsbær – Girðingavinna og merking göngustíga að Helgufossi.
  • Rotaryklúbbur Akureyrar – Stígagerð í Botni í Eyjafjarðasveit.
  • Skeiða – og Gnúpverjahreppur – Viðhald og endurgerð göngustíga í Þjórsárdal.
  • Skíðasvæði Höfuðborgarsvæðisins – Hreinsun og fegrun umhverfis.
  • Skógrækt ríkisins – Stígagerð, áburðargjöf o.fl. í Þjórsárdalsskógi.
  • Skógræktarfélag A-Húnvetninga – Gróðursetning, grisjun, stígagerð o.fl.
  • Skógræktarfélag Austurlands – Hreinsun, lagfæring stíga o.fl. Eyjólfsstaðaskógur.
  • Skógræktarfélag Hafnarfjarðar – Stígagerð, lagfæring stíga, gróðursetning o.fl. við Hvaleyravatn.
  • Skógræktarfélag Kópavogs – Umhirða útivistarsvæðis í Guðmundarlundi og á Fossá í Hvalfirði.
  • Skógræktarfélag Reykjavíkur – Stígagerð, gróðursetning o.fl. í Heiðmörk.
  • Skógræktarfélag Skagfirðinga, Hóladeild – Viðhald á göngustígum.
  • Skriðuklaustur – Hleðsla á grjótveggi við fornminjar.
  • Skútustaðahreppur – Girðingahreinsun í Gjástykki og Krákárbotnum m.m.
  • Sóknarnefnd Bergsstaðakirkju í Svartárdal – Sláttur og hirðing á kirkjugarði.
  • Sólheimar – Viðhald á girðingum og göngustígagerð.
  • Umhverfisstofnun – Eyðing fræbanka, kortlagning á skógarkerfli og stígagerð í Mývatnssveit.
  • Ungmennafélag Bólstaðarhlíðarhrepps – Sláttur og umhirða íþróttavallar við Húnaver.
  • Ungmennafélag Gnúpverja – Umhirða hlaupabrautar við íþróttavöll.
  • Valþjófsstaðakirkjugarður í Fljótsdal – Sláttur og hirðing á kirkjugarði.



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica