Samstarfsaðilar

Landsvirkjun kemur að ýmsum samfélags- og samstarfsverkefnum sem varða umhverfismál. Landsvirkjun leggur lið samfélagsmálefnum sem efla hag þeirra svæða þar sem fyrirtækið starfar. Í því skyni vill fyrirtækið eiga samstarf um verkefni þar sem hagsmunir samstarfsaðilanna og Landsvirkjunar fara saman og báðir leggja sitt af mörkum. Landsvirkjun leggur áherslu á að bæta innviði ferðamennsku og útivistar á virkjunarsvæðum og vill efla ferðaþjónustu þar með samstarfi á sviði mennigarmál m.a. með því að halda sýningar og aðra viðburði í starfsstöðvum fyrirtækisins.

Síðastliðin ár hefur Landsvirkjun auglýst eftir samstarfsaðilum undir nafninu „Margar hendur vinna létt verk“ og býður þar fram vinnu sumarvinnuflokka sinna við uppbyggingu á sviði ferðamála og umhverfismála. Fjölmargar umsóknir hafa borist frá sveitarfélögum, félagasamtökum og aðilum í ferðaþjónustu um land allt. Tekist hefur að sinna þeim flestum og koma þannig á samstarfi við ótal aðila sem byggja má á í framtíðinni.

Vistvernd í verki

Landvernd – Vistvernd í verki

Vistvernd í verki er alþjóðlegt umhverfisverkefni fyrir heimili. Markmið verkefnisins er að styðja og hvetja fólk til að taka upp vistvænni lífsstíl skref fyrir skref á þeim hraða sem hver velur sér.

Sjálfbærniverkefni Alcoa og Landsvirkjunar

Sjálfbærniverkefni Alcoa Fjarðaáls og Landsvirkjunar

Markmið verkefnisins er að styðja hugmyndafræði um sjálfbæra þróun og taka tillit til umhverfis, efnahags og félagslegra þátta. Sjálfbærniverkefnið var sett á laggirnar árið 2004 í upphafi framkvæmda við byggingu álvers Fjarðaáls og Kárahnjúkavirkjunar.

Íslensk Nýorka

Vistorka - Landsvirkjun stendur að Vistorku

Vistorka stendur fyrir verkefnum til að prófa nýja vetnistækni og stuðla að notkun vetnis í íslensku samfélagi svo framarlega sem samtök um það nást við nauðsynlega samstarfsaðlia. Vetnistækni er í mikilli þróun um allan heim og aðstæður á Íslandi ákjósanlegar fyrir tilraunir og prófanir.

Orkurannsóknasjóður - Styrkþegar 2009

Orkurannsóknarsjóður Landsvirkjunar

Sjóðurinn var stofnaður haustið 2007. Markmið sjóðsins eru að auka áhuga vísindamanna og háskólasamfélagsins á umhverfis- og orkumálum og hvetja háskólanemendur til starfsframa á því sviði auk þess að gera framlög Landsvirkjunar til grunnrannsókna sýnilegri.

Sólheimar í Grímsnesi

Sólheimar í Grímsnesi

Sólheimar í Grímsnesi hafa verið samstarfsaðilar Landsvirkjunar. Samstarfið hefur falist í að setja niður girðingarstaura og leggja göngustíga.


Vilt þú vinna með okkur að samfélagsverkefnum?

Landsvirkjun vill heyra frá sem flestum tillögur og hugmyndir sem falla að stefnumiðum fyrirtækisins um samfélagsábyrgð.

Tenging: Margar hendur vinna létt verk >>

 


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica