Sjálfbær þróun
Landsvirkjun hefur tekið þátt í og stuðlað að verkefnum sem hvetja til sjálfbærrar þróunar.
Hugtakið sjálfbær þróun varð fyrst áberandi í alþjóðlegri umræðu á níunda áratug síðustu aldar en festist síðan endanlega í sessi á ráðstefnu þjóðarleiðtoga um umhverfi og þróun sem haldin var í Rio de Janeiro árið 1992.
Sjálfbær þróun hefur verið skilgreind sem þróun sem mætir þörfum samtímans án þess að draga úr möguleikum komandi kynslóða til þess að mæta þörfum sínum.
Í fyrstu grunnreglu Ríó-yfirlýsingarinnar segir: „Sjálfbær þróun snýst um manninn og möguleika hans. Fólk á að geta starfað og lifað heilbrigðu lífi í sátt við náttúruna.“
Sjálfbær þróun hefur þrjár meginstoðir: efnahagsvöxt, félagslega velferð og jöfnuð og vernd umhverfisins. Skoða verður þessa þrjá þætti í samhengi og leitast við að hámarka efnahagslega og félagslega velferð án þess að skaða umhverfið. Þróun er flókið ferli þar sem spila saman ákvarðanir stjórnvalda, fyrirtækja, félagasamtaka og einstaklinga.

Sjálfbær þróun er ekkert töfrahugtak sem hefur að geyma einfaldar lausnir á vanda mannkyns en hún felur í sér gagnlega og árangursríka nálgun sem þjóðir heims hafa sameinast um að hafa að leiðarljósi í viðleitninni við að leysa mörg helstu viðfangsefni 21. aldarinnar.
Það er stefna Landsvirkjunar að stuðla að sjálfbærri þróun samfélagsins.
Segja má að grunnurinn að sjálfbærri þróun sé ábyrgt atvinnulíf (sjá mynd). Með því að einsetja sér að stuðla að sjálfbærri þróun samfélagsins vill Landsvirkjun leggja þann grunn sem til þarf til að samfélagið þróist á sjálfbæran hátt.
Meginhugmyndin að sjálfbærri nýtingu auðlinda er einföld og alls ekki ný af nálinni. Hún er tvíþætt, í fyrsta lagi að nýta auðlindir jarðarinnar á hófsaman hátt og þá helst þannig að þær nái að endurnýja sig. Í öðru lagi að nýta ekki auðlindirnar á þann hátt að af hljótist mengun þannig að umhverfið spillist að óþörfu.
Sjálfbærniverkefni Landsvirkjunar og Alcoa Fjarðaáls var sett á laggirnar til að fylgjast með áhrifum framkvæmda við Kárahnjúkavirkjum og álverið í Reyðarfirði á samfélag, umhverfi og efnahag á Austurlandi. Fyrirtækin fengu til liðs við sig fulltrúa ýmissa hópa, bæði með og á móti framkvæmdunum og myndaður var samráðshópur sem vann að verkefninu.
Sjá nánar http://www.sjalfbaerni.is/
Hugtakið sjálfbær þróun er þýðing á hugtakinu ,,Sustainable development”. Í orðabók er orðið sustain þýtt sem halda/bera uppi og styðja og halda gangandi. Á dönsku er hugtakið sjálfbær þróun þýtt sem „bæredygtig udvikling“, á norsku „bærekraftig utvikling” og á sænsku „hållbar utveckling” .
