Umhverfisstjórnun

ISO 14001 vottun LandsvirkjunarÖll starfsemi Landsvirkjunar er vottuð samkvæmt alþjóðastaðlinum ÍST EN 14001.

Öll starfsemi Landsvirkjunar er vottuð samkvæmt alþjóðastaðlinum ÍST EN 14001. Vottunin nær því til raforkuvinnslu, sölu og afhendingar á raforku ásamt rannsókna og stjórnunar viðhalds- og nýframkvæmda við Blöndustöð, Fljótsdalsstöð og aflstöðvar á Mývatnssvæði, Sogssvæði og Þjórsársvæði.

Fyrirtæki með ISO 14001 vottun hefur farið í gegnum ferli sem felur í sér stefnumótun á sviði umhverfismála og ítarlega skoðun á hvaða umhverfisáhrif starfsemi fyrirtækisins hefur. Fyrirtækið setur sér umhverfisstefnu og markmið um hvernig megi draga úr mikilvægum umhverfisáhrifum starfseminnar. Í ISO 14001 staðlinum eru kröfur um að markmiðum sé náð og að sífelldar úrbætur eigi sér stað.

Fyrirtækið hefur skilgreint þýðingarmikla umhverfisþætti starfseminnar og farið ítarlega yfir alla vinnuferla sem þeim tengjast. Jafnramt gerir fyrirtækið framkvæmdaáætlun til þess að vakta og stýra þessum þýðingarmiklu umhverfisþáttum með það að markmiði að draga úr umhverfisáhrifum.

Þetta verklag hefur meðal annars í för með sér að komið hefur verið á vinnulagi til þess að skrá frávik og athugasemdir. Þá halda starfsmenn utan um upplýsingar um notkun jarðefnaeldsneytis, en markmið fyrirtækisins er að draga úr losun gróðurhúslofttegunda. Með aðstoð græns bókhalds er haldið utan um upplýsingar um allan úrgang sem frá starfseminni fer með það að markmiði að draga úr magni úrgangs sem fer til urðunar. Þá er stöðugt unnið að úrbótum á meðferð varúðarmerktra efna og spilliefna, einnig með það að markiði að draga úr notkun þeirra.

Landsvirkjun tekur árlega saman upplýsingar um stöðu umhverfismála hjá fyrirtækinu og gefur út í umhverfisskýrslu Landsvirkjunar.

Þá tryggir fyrirtækið að allir starfmenn hafi þekkingu á lögum og reglugerðum á sviði umhverfis- og öryggismála sem gilda um starfsemi þess.

Nánari upplýsingar um umhverfisstjórnun Landsvirkjunar:

Umhverfisskýrsla Landsvirkjunar 2008
Umhverfisskýrsla raforkuvinnslu Landsvirkjunar 2007
Umhverfisskýrsla raforkuvinnslu Landsvirkjunar 2006

Kolefnisspor Landsvirkjunar 2008
Kolefnisspor Landsvirkjunar 2007

Fleiri skýrslur sem tengjast umhverfismálum >>
 

Senda grein


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica