Starfsstöðvar
Starfsemi Landsvirkjunar er vottuð skv. ISO 9001 og ISO 14001 og uppfyllir einnig kröfur Neytendastofu (áður Löggildingarstofu) um innri öryggisstjórnun.
Raforkuvinnsla Landsvirkjunar er vottuð af TÜV SÜD sem vinnsla frá endurnýjanlegum orkugjöfum skv. RES-E tilskipun Evrópusambandsins. Sjá nánar um Græn vottorð.
Þá er Landsvirkjun handhafi Íslensku gæðaverðlaunanna 2008.
Raforkuvinnsla Landsvirkjunar fer fram á eftirtöldum starfstöðvum: Blöndustöð, Fljótsdalsstöð og Kárahnjúkum, Mývatnssvæði, Sogssvæði og á Þjórsársvæði. Allar starfstöðvarnar hafa skilgreint leiðbeiningar um umhverfisstjórnun. Hægt er að skoða þessi skjöl hér að neðan fyrir hverja einstaka stöð.
Athygli er vakin á því að þessi skjöl eru í stöðugri endurskoðun og ekki tryggt að nýjasta útgáfa sé kominn á vefinn.
Skráasafn
Umhverfisstjórnun Blöndustöðvar
Umhverfisstjórnun Fljótsdalsstöðvar
Umhverfisstjórnun Mývatnssvæðis (Kröflustöð, Laxárstöðvar, Bjarnarflagsstöð)
Umhverfisstjórnun Sogssvæðis (Írafossstöð, Ljósafossstöð, Steingrímsstöð og varaaflsstöðin í
Straumsvík)
Umhverfisstjórnun Þjórsársvæðis (Búrfellsstöð, Hrauneyjafossstöð, Sigöldustöð, Sultartangastöð og
Vatnsfellsstöð)
Umhverfisstjórnun í starfsstöðvum Landsvirkjunar í Reykjavík og á Akureyri
