Umhverfisstefna
Umhverfisstefna Landsvirkjunar
- Landsvirkjun er í fararbroddi á sviði umhverfismála og stuðlar að sjálfbærri þróun í samfélaginu.
- Landsvirkjun leggur áherslu á að þekkja umhverfisáhrif starfsemi sinnar og leitast við að lágmarka þau áhrif. Til þess að ná stöðugt betri árangri á þessu sviði eru þýðingarmiklir umhverfisþættir vaktaðir og markvisst unnið að umbótum.
- Landsvirkjun tryggir að öllum lagalegum kröfum á sviði umhverfismála sé fullnægt og setur sér strangari kröfur eftir því sem við á.
- Landsvirkjun leggur áherslu á að starfsfólk sem og aðrir sem vinna fyrir fyrirtækið hafi yfir að ráða hæfni og þekkingu til að framfylgja þessari stefnu fyrirtækisins.
- Landsvirkjun kynnir stefnu sína í umhverfismálum opinberlega og gerir grein fyrir árangri fyrirtækisins í umhverfismálum og stuðlar þannig að opinni og málefnalegri umræðu.
Markmið Landsvirkjunar í umhverfismálum
- Umgengni í sátt við lífríki og náttúru.
- Betri nýting auðlinda.
- Umhverfisslysalaus starfsemi.
- Minni losun gróðurhúsalofttegunda.
- Minni úrgangur.
