Útgefið efni
Umhverfisskýrsla Landsvirkjunar
Landsvirkjun er með votta umhverfisstjórnunarkerfi samkvæmt alþjóðlega umhverfisstjórnunarstaðlinum ISO 14001. Skýrslurnar innihalda upplýsingar um stefnu og markmið í umhverfismálum og umfang vöktunar.
Umhverfisskýrsla Landsvirkjunar 2008
Umhverfisskýrsla Landsvirkjunar 2007
Loftslagsbókhald Landsvirkjunar
Í skýrslunni, sem nefnist Kolefnisspor Landsvirkjunar koma fram upplýsingar um kolefnislosun Landsvirkjunar. Stefnt er að því að gera starfsemi Landsvirkjunar kolefnishlutlausa.
Kolefnisspor Landsvirkjunar 2008
Kolefnisspor Landsvirkjunar 2007
Kröfur og tilmæli til verktaka og þjónustuaðila
Bæklingurinn Kröfur og tilmæli Landsvirkjunar til verktaka og þjónustuaðila er varða umhverfis- og öryggismál kom út haustið 2008. Í bæklingnum er yfirlit yfir kröfurnar sem aðilar þurfa að uppfylla. Bæklingurinn gefur glögga mynd af því sem samstarfsaðilar verða að skoða og hafa í lagi í sambandi við umhverfis- og öryggismálin og hann inniheldur mikið af útskýringum og skýringarmyndum.
Lesa bæklinginn
Sorpflokkun
Bæklingurinn er handbók starfsmanna Landsvirkjunar að Háaleitisbraut 68 meðhöndlun og flokkun sorps. Markmiðið með sorpflokkun er að draga úr myndun úrgangs. Með réttri flokkun má draga umtalsvert úr magni úrgangs sem fer til urðunar og auka það magn sem fer til endurvinnslu og endurnýtingar.
Sorpflokkun - Handbók fyrir starfsemi Landsvirkjunar að Háaleitisbraut 68
Skýrsla um samfélagsábyrgð
Landsvirkjun hefur gefið út skýrslu um samfélagsábyrgð fyrirtækisins sem ætlunin er að verði grunnur að árlegri greinargerð fyrir árangri á því sviði. Skýrslan er unnin á grundvelli viðmiða sem er að finna í drögum að alþjóðlega staðlinum ISO 26000 fyrir samfélagsábyrgð fyrirtækja.
Samfélagsábyrgð Landsvirkjunar
