Birgjamat

Birgjamat samkvæmt stöðlunum ISO 9001 og 14001

Landsvirkjun er vottað fyrirtæki samkvæmt staðlinum ISO 9001. Einnig er öll starfsemi Landsvirkjunar vottuð samkvæmt staðlinum ISO 14001 um umhverfisstjórnun.

Með birgjamati leitar Landsvirkjun leiða til að koma á tengslum við birgja og samstarfsaðila með það að markmiði að bæta virði og taka tillit til umhverfismála. Þá vill Landsvirkjun meta, viðurkenna og veita umbun fyrir árangur.

Landsvirkjun vill koma á samskiptum milli fyrirtækja til að greiða fyrir lausn vandamála sem upp kunna að koma og koma í veg fyrir kostnaðarsamar tafir. Einnig vill Landsvirkjun eiga samstarf við birgja um fullgildingu á færni þeirra og vakta getu birgja til að skila vöru og þjónustu sem samræmist kröfum fyrirtækisins.

Landsvirkjun vill gjarnan hafa birgja með í ráðum í hönnunar- og þróunarstarfsemi fyrirtækisins til þess að deila þekkingu og bæta afhendingarferli vöru og þjónustu.

Þeir birgjar sem standast kröfur sem getið er um í gæðakerfi Landsvirkjunar eru skráðir samþykktir birgjar.

Á síðunum sem birgjamatið er gert á er spurningarlisti sem Landsvirkjun biður ykkur vinsamlega að svara. Jafnframt er óskað eftir upplýsingum um þær vörur/þjónustu sem Landsvirkjun kaupir af fyrirtæki ykkar.

Eyðublöð

Birgjamat samkvæmt ISO 9001 - gæðastjórnun >>
Birgjamat samkvæmt ISO 14001 - umhverfisstjórnun >>


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica