Verktakar og þjónustuaðilar
Landsvirkjun setur fram kröfur og tilmæli til verktaka, birgja og þjónustuaðila varðandi umhverfis- og öryggismál.
Landsvirkjun setur fram kröfur og tilmæli til verktaka, birgja og þjónustuaðila varðandi umhverfis- og öryggismál. Margir verktakar koma að starfsemi Landsvirkjunar. Þeir vinna bæði sjálfstætt og með starfsmönnum Landsvirkjunar að þeim verkum sem samið hefur verið um. Það er augljóst að samstarf og samhæfð vinnubrögð skapa árangur og gera stjórnendum Landsvirkjunar mögulegt að setja markmið í umhverfis- og öryggismálum ásamt öðrum markmiðum sem lúta að stjórn fyrirtækisins.
Athuga þarf að sumar kröfur Landsvirkjunar ganga lengra en lög og reglugerðir segja til um. Kröfugerðin tekur mið af umhverfis- og öryggisstefnu Landsvirkjunar og þeim áherslum sem þar koma fram. Hún er á engan hátt tæmandi varðandi umhverfismál á Íslandi og fríar ekki verktaka og þjónustuaðila frá því að uppfylla öll lög og reglugerðir sem í gildi eru á hverjum tíma.
Ætlast er til þess að verktakar fari að þeim lögum, reglugerðum og reglum sem varða öryggi og heilbrigði á vinnustað, s.s. lögum nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustað með síðari tíma breytingum, reglum nr. 547/1996 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggisráðstafanir á byggingarvinnustöðum og við aðra tímabundna mannvirkjagerð og reglugerð nr. 920/2006 um skipulag og framkvæmd vinnuverndarstarfs á vinnustöðum.
Hið sama gildir gagnvart öllum öðrum íslenskum lögum, reglugerðum og reglum sem gilda á hverjum tíma en eru ekki sérstaklega talin upp hér en snerta viðkomandi verkefni á einhvern hátt.
Jafnframt skulu verktakar fara eftir þeim reglum og tilmælum sem Landsvirkjun hefur sett sem hugsanlega fara fram úr þeim almennu kröfum sem löggjafinn og framkvæmdavaldið setja.
Reglur Landsvirkjunar eru því ekki tæmandi fyrir ábyrgð og skyldur verktaka og færir ekki ábyrgð umhverfis- og öryggismála frá verktaka yfir á Landsvirkjun.
